Ráðið hefur verið í stöðu launafulltrúa hjá Þingeyjarsveit

Valdís Stefánsdóttir hefur verið ráðin launafulltrúi á skrifstofu Þingeyjarsveitar og mun hún hefja störf 2. janúar n.k. Valdís hefur víðtæka reynslu af launabókhaldi og útreikningi launa til margra ára. Hún flutti nýverið í Þingeyjarsveit ásamt manni sínum Valþóri Brynjarssyni.