Nýjar reglugerðir um takmarkanir á samkomuhaldi og skólastarfi til að sporna við útbreiðslu COVID-19 tóku gildi á miðnætti 5. október og gilda til og með 19. október n.k.
Hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman verður 20 manns. Líkamsræktarstöðvum verður lokað og einnig krám, skemmti- og spilastöðum. Gestir á sundstöðum mega að hámarki vera 50% af leyfilegum fjölda samkvæmt starfsleyfi. Fjarlægðarmörk verða áfram 1 metri og við aðstæður þar sem slíkt er ekki mögulegt er skylt að nota andlitsgrímur.
Undantekningar frá 20 manna hámarki
Eftirtaldar eru undanþágur frá 20 manna hámarki. Þar gildir sem annars staðar að ef ekki er hægt að uppfylla 1 metra fjarlægðarmörk er skylt að nota andlitsgrímu:
Keppnisíþróttir með snertingu verða leyfðar með hámarksfjölda 50 einstaklinga að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
Áhorfendur á íþróttaleikjum: Óheimilt er að hafa áhorfendur á íþróttaviðburðum innandyra. Utandyra er heimilt að hafa áhorfendur, allt að 100 í hverju rými, að því gefnu að gestir sitji í númeruðum sæti sem skráð eru á nafn og noti andlitsgrímu.
Leik- og grunnskólar: Engar hömlur gilda hjá börnum sem eru fædd 2005 og síðar en hjá þeim sem eldri eru gildir 30 manna hámarksregla í hverju rými, 1 metra fjarlægðarmörk og grímuskylda sé ekki hægt að virða fjarlægðarmörk.
Hlekkir í nýjar reglugerðir verða birtir hér að neðan um leið og þær hafa verið birtar í Stjórnartíðindum síðar í kvöld.