Kynningarfundir í Skjólbrekku og Ljósvetningabúð

Í kjölfar samþykkta sveitarstjórna Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar um skipan samstarfsnefndar sem kanna skal ávinning af sameiningu sveitarfélaganna í samræmi við 119. grein sveitarstjórnarlaga, er boðað til kynningarfunda í báðum sveitarfélögunum, sem hér segir:

Fimmtudaginn 20. júní

Kl. 17:00 í Félagsheimilinu Skjólbrekku í Skútustaðahreppi

Kl. 20:00 í Ljósvetningabúð í Þingeyjarsveit

Á fundunum verður ferli verkefnisins kynnt og íbúum gefst tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri strax í upphafi.

Við hvetjum íbúa okkar til þess að mæta á fundina og kynna sér málin.  

Sveitarstjórnir Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar