Kosningar til Alþingis

Laugardaginn 29. október næstkomandi fara fram kosningar til Alþingis. Í Þingeyjarsveit fer atkvæðagreiðsla fram í Ljósvetningabúð og hefst kjörfundur kl.10:00 og stendur til a.m.k. kl.18:00 sbr. lög nr.5/1998  66. gr." Atkvæðagreiðslu má ekki slíta fyrr en átta klukkustundir eru liðnar frá því að kjörfundur hófst  og ekki fyrr en hálf klukkustund er liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram."

Kjörfundi skal þó slíta í síðasta lagi kl. 22:00.

Á kjörstað geri kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja eða á annan fullnægjandi hátt.

Sími kjörstjórnar á kjörstað er 464-3617 og 866-0025