73. fundur

Fundargerð

Skipulagsnefnd

07.01.2016

73. fundur

Skipulagsnefnd

Skipulags- og umhverfisnefnd – 07.01.2016

_________________________________________________________________________

73. fundur.

7. janúar 2016 kl. 10:00 -11:30

Fundarstaður:  Kjarni

__________________________________________________________________________

Fundarmenn:                                                           Starfsmenn:

Ásvaldur Ævar Þormóðsson, form.              Bjarni Reykjalín, skipulags- og byggingarfulltrúi

Jóhanna Sif Sigþórsdóttir                              (fundarritari)

Nanna Þórhallsdóttir                         

Sigurður Hlynur Snæbjörnsson                      

Sæþór Gunnsteinsson                                                                     

Dagskrá:

  1. Vaglaskógur.  Deiliskipulag.
  2. Illugastaðir. Aðal- og deiliskipulag.
  3. Svartárvirkjun í Bárðardal.  Aðal- og deiliskipulag.
  4. Hvoll.  Umsókn um stofnun lóðar.
  5. Helluland.  Umsókn um stofnun lóðar.
  6. Hvítafell á Laugum.  Umsókn um stækkun lóðar. 

 1. Vaglaskógur.  Deiliskipulag.   S20150402

Tekið fyrir að nýju erindi dags 10. apríl frá Landslagi efh, Ómari Ívarssyni, skipulagsfræðingi, f.h. Skógræktar ríkisins þar sem óskað er eftir heimild skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til að hefja vinnu við deiliskipulag fyrir Stórarjóður og Hróarsstaðanes ásamt svæði umhverfis verslun í Vaglaskógi.  Deiliskipulagið felur m.a. í sér að skilgreina fyrirkomulag tjaldsvæða, snyrtinga, göngustíga, áningarstaða, leiksvæða og bílastæða á svæðunum ásamt því að staðsetja áningarbyggingu og mögulega þjónustubyggingu á svæðinu.  Með umsókn fylgdi skipulagslýsing dags. 10. apríl 2015. 

Sveitarstjórn heimilaði umsækjanda að vinna deiliskipulag á fundi sínum þann 30. apríl s.l. og deiliskipulagslýsing var kynnt Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og fyrir almenningi frá og með 7. maí til og með 28. maí 2015 eins og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 mælir fyrir um.  Tekið var tillit til umsagna í vinnu við deiliskipulagið.

Innkomin ný gögn 15. október s.l. tillaga að deiliskipulagi ásamt greinargerð dags. 12. október 2015.

Sveitarstjórn samþykkti þann 29. október 2015 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi og var hún auglýst eins og og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 mælir fyrir um frá og með 6. nóvember til og með 18. desember 2015.  Athugasemdir/umsagnir bárust frá Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Minjastofnun Íslands og Umhverfisstofnun.

Vegagerðin, 9. nóvember.

„Varðandi tillöguna fyrir Vaglaskóg eru ekki gerðar athugasemdir við bílastæðið við verslunina.  Vegagerðin getur hins vegar alls ekki fallist á tillöguna varðandi þau bílastæði sem fyrirhuguð eru meðfram Vaglaskógarveginum, á móts við Stórarjóður og Hróarsstaðanes, sem teiknuð eru án aðskilnaðar frá veginum.“

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra, 18. nóvember.

„Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra hefur kynnt sér meðfylgjandi gögn varðandi deiliskipulag í Vaglaskógi og gerir ekki athugasemdir við gögnin sem slík.  Athygli er vakin á öryggiskröfum sem gilda um leiksvæði barna og mikilvægi þess að haft verði samráð við heilbrigðisfulltrúa um nánara skipulag slíkra svæða og staðsetningu og val leiktækja m.t.t. til slysa- og fallhættu.“

Minjastofnun Íslands, dags 21.desember                                                                                „...........Í Vaglaskógi þarf að rannsaka með uppgreftri og sýnatöku þær kolagrafir sem eru í hætti vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Á skipulagsuppdrættinum má sjá kolagrafir við jaðar fyrirhugaðs tjaldsvæðis í Stóra Rjóðri, innan tjaldsvæðis á Hróarsstaðanesi og innan „Dvalarsvæðis“ við verslun. Samkvæmt greinargerð eru aðeins þrjár kolagrafir í hættu vegna skipulagsins ( kafli 2.8 ), en Minjastofnun telur að skoða verði vel hvort þær kolagrafir sem eru innan tjaldsvæða geti einnig verið í hættu, vegna framkvæmdanna eða vegna ágangs ferðamanna á skipulagssvæðunum.“

Umhverfisstofnun, dags 18. desember

(Útdráttur.  Athugasemdir UST eru í heild sinni hluti af gögnum málsins)

Skipulagssvæðið:

„......... Að mati Umhverfisstofnunar þarf að breyta aðalskipulagi Þingeyjarsveitar þar sem opið svæði til útivistar breytist í svæði fyrir verslun og þjónustu. Umhverfisstofnun bendir á að skv. skipulagsreglugerð nr. 90/2013 skal nota þá liti og tákn fyrir landnotkunarflokka sem fram koma í töflu 7.1.“

Vaglaskógur.

„.............Í greinargerð segir að ofangreint deiliskipulag falli ekki undir lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Í lögum um mat á umhverfisáhrifum áætlana nr. 105/2006 segir í 3. gr. um gildissvið laganna að: „Ákvæði laga þessara gilda um umhverfismat þeirra skipulags- og framkvæmdaáætlana og breytinga á þeim sem marka stefnu er varðar leyfisveitingar til framkvæmda sem tilgreindar eru í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.“

Umhverfisstofnun bendir á að í 1. viðauka laga nr. 106/2000 í lið 12.05 kemur fram að þjónustumiðstöðvar fyrir ferðamenn á hálendi og á verndarsvæðum á láglendi utan þéttbýlis, orlofsþorp, hótel og tengdar framkvæmdir utan þéttbýlis séu í flokki B. Skv. lögunum eru í flokki B tilgreindar framkvæmdir sem kunna að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og metið er í hverju tilviki með tilliti til eðlis, umfangs og staðsetningar hvort háðar skuli mat á umhverfisáhrifum skv. lögunum. Í greinargerð segir að Ríkissjóður hafi keypt bæinn Vagla gagngert til að friða skóginn. Birkiskógar falla skv. lögum um náttúruvernd nr. 60/2013 undir sérstaka vernd, því fellur svæðið undir skilgreininguna náttúruverndarsvæði.“

Stórarjóður og Hróarsstaðanes.

„.............Að mati Umhverfisstofnunar þyrfti að koma fram á hve stóru svæði er ætlað að ryðja skóg. Einnig bendir stofnunin á að hluti af töfrum skógar er lægri gróður. Að mati Umhverfisstofnunar felur deiliskipulagið í sér að ryðja þarf skóg svo fólk geti kynnst honum betur. Að mati Umhverfisstofnunar færi betur á því að fólk kynnist skóginum með því að ganga um óröskuð skógarsvæði af upprunalegum íslenskum birkiskóg og að lögð sé áhersla á að þróa tjaldsvæði í skógarjaðri og í nágrenni skógar. Að mati Umhverfisstofnunar er mikilvægt að minnka álag á upprunalegan íslenskan birkiskóg og að hann fái að þróast á eigin forsendum.

Náttúruvernd:

„Umhverfisstofnun bendir á að í 57. gr. núgildandi náttúruverndarlaga nr. 60/2013 er listi yfir tiltekin vistkerfi er njóta sérstakrar verndar. Þar kemur fram að: „sérstæðir og vistfræðilega mikilvægir birkiskógar og leifar þeirra þar sem eru m.a. gömul tré“, njóta sérstakrar verndar. Í lögunum kemur einnig fram að:“Forðast ber að raska birkiskógum nema brýna nauðsyn beri til. Skylt er að afla framkvæmdaleyfis, eða eftir atvikum byggingarleyfis, sbr. skipulagslög og lög um mannvirki, vegna framkvæmda sem hafa í för með sér slíka röskun. Áður en leyfi er veitt skal leyfisveitandi leita umsagnar Umhverfisstofnunar og viðkomandi náttúruverndarnefndar nema fyrir liggi staðfest aðalskipulag og samþykkt deiliskipulag þar sem umsagnir skv. 1. og 2. mgr. 68. gr. liggja fyrir. Við mat á leyfisumsókn skal líta til verndarmarkmiða 2. og 3.gr. og jafnframt huga að mikilvægi minjanna og sérstöðu í íslensku og alþjóðlegu samhengi. Ákveði leyfisveitandi að heimila framkvæmd skal hann rökstyðja þá ákvörðun sérstaklega fari hún í bága við niðurstöðu umsagnaraðila. Heimilt er að binda leyfi skilyrðum sem þykja nauðsynleg til að draga úr áhrifum framkvæmdarinnar á þau náttúrufyrirbæri sem verða fyrir röskun.“

Umhverfisstofnun telur ekki ásættanlegt að ryðja birkiskóg sem er sérstæður og vistfræðilega mikilvægur eins og Vaglaskógur er, til þess að fá rými fyrir tjaldstæði og bílastæði heldur skuli fara í slíkar framkvæmdir fyrir utan skóginn.“

Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu málsins að sinni en felur skiplags- en byggingarfulltrúa í samráði við viðkomandi skipulagsráðgjafa og Skógrækt ríkisins að gera tillögu að svörum við framkomnum athugasemdum og leggja fyrir nefndina til nánari umfjöllunar.

2. Illugastaðir.  Aðal- og deiliskipulag.   S20131001.  

Tekið fyrir að nýju.  Tillögurnar gera ráð fyrir að svæði sem skilgreint er sem svæði fyrir frístundabyggð í Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010-2022 stækki úr 19,7 ha í 38 ha.  Skipulags- og umhverfisnefnd Þingeyjarsveitar kynnti tillögur að breytingu á aðalskipulagi og tillögu að deiliskipulagi vegna fyrirhugaðrar stækkunar á orlofshúsabyggðinni almennum fundi á Illugastöðum í Fnjóskadal 26. maí s.l. Tillögurnar voru kynntar eins og 2. mgr. 30. gr. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 mæla fyrir um.

Á fundinum komu fram óverulegar athugasemdir við deiliskipulagstillöguna sem tekið hefur verið tillit til í fyrirliggjandi skipulagsgögnum.

Sveitarstjórn samþykkti þann 18. júní 2015 að auglýsa tillögurnar og voru þær auglýstar samhliða eins og 1. mgr. 31. gr. og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 mæla fyrir um frá og með 6. nóvember til og með 18. desember 2015.  Athugasemdir/umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Vegagerðinni og Umhverfisstofnun.

Minjastofnun Íslands, 21. desember.                                                                          „............Á Illugastöðum þarf að kanna þann hluta gamla heimatúnsins, sem verður raskað vegna bygginga orlofshúsa en fram kemur í skýrslu um fornleifaskráningu á svæðinu að hluti fyrirhugaðrar orlofsbyggðar nái inn á gömlu heimatúnin.“

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra, 18. nóvember.

„Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra hefur kynnt sér meðfylgjandi gögn varðandi deiliskipulag á Illugastöðum ásamt aðalskipulagsbreytingu og gerir ekki athugasemdir við gögnin sem slík.  Athygli er vakin á öryggiskröfum sem gilda um leiksvæði barna og mikilvægi þess að haft verði samráð við heilbrigðisfulltrúa um nánara skipulag slíkra svæða og staðsetningu og val leiktækja m.t.t. til slysa- og fallhættu.“

Vegagerðin, 9. nóvember.                                                                                                     Ekki eru gerðar athugasemdir við skipulagstillöguna fyrir Illugastaði.

Umhverfisstofnun, 17. desember.                                                                                       „Umhverfisstofnun gerir ekki athugasemd við deiliskipulag orlofsbyggðar að Illugastöðum.“

Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu málsins að sinni en felur skiplags- og byggingarfulltrúa í samráði við viðkomandi skipulagsráðgjafa að gera tillögu að svörum við framkomnum athugasemdum og leggja fyrir nefndina til nánari umfjöllunar.

3. Svartárvirkjun í Bárðardal.  Aðal- og deiliskipulag.   S20150102

Borist hefur erindi frá Skipulagsstofnun til sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar dags. 7. desember 2015 þar sem óskað er eftir því að Þingeyjarsveit gefi umsögn í samræmi við 6. gr. laga nr. 106/200 m.s.b. og 11. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum um hvort og á hvaða forsendum framkvæmdir við fyrirhugaða Svartárvirkjun skuli háðar mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 2. viðauka í framangreindum lögum

Skipulags- og umhverfisnefnd telur sig ekki hafa forsendur til að gefa umsögn um hvort fyrirhuguð framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum eður ei.  Nefndi ítrekar þó fyrri afstöðu sína frá fundi 22. október 2015 um að gerð verði krafa um vöktun óháðs eftirlitsaðila á rennsli árinnar m.t.t. fiskigengdar svo lágmarksrennsli árinnar verð tryggt og gerð verði áætlun um  mótvægisaðgerðir til þess að staðbundnum fiskstofni hennar verði ekki stefnt í voða.

4. Hvoll.  Umsókn um stofnun lóðar.   S20151201

Erindi dags 2. desember 2015 frá Bjarna Eyjólfssyni, Hvoli í Þingeyjarsveit þar sem sótt er um heimild til að stofna lóð undir frístundahús út úr landi Hvols.

Fylgigögn með umsókn eru útfyllt eyðublað F-550 frá Þjóðskrá og hnitsettur lóðaruppdráttur frá Búgarði (GHG). 

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt og jafnframt verði skipulags- og byggingarfulltrúa falið að stofna lóðina í fasteignagrunni Þjóðskrár.

5. Helluland.  Umsókn um stofnun lóðar.   S20151202

Erindi dags 16. desember 2015 frá Kjartani Stefánssyni f.h. Vinnuvéla Smára ehf, þar sem sótt er um heimild til að stofna lóð undir núverandi íbúðarhús út úr landi Hellulands í Þingeyjarsveit.

Fylgigögn með umsókn eru útfyllt eyðublað F-550 frá Þjóðskrá og hnitsettur lóðaruppdráttur frá Búgarði (GHG). 

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt og jafnframt verði skipulags- og byggingarfulltrúa falið að stofna lóðina í fasteignagrunni Þjóðskrár.

6. Hvítafell á Laugum.  Umsókn um stækkun lóðar.   S20160101

Erindi dags. 4. janúar 2016 frá Sigurbirni Á Arngrímssyni, skólameistara, f.h. Laugaskóla þar sem sótt er um heimild til að stækka lóð Hvítafells á Laugum úr 2.133 m² í 2.786 m² skv. meðfylgjandi hnitsettu lóðarblaði frá Loftmyndum ehf dags í desember 2015.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við stækkun lóðarinnar og leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt og jafnframt verði skipulags- og byggingarfulltrúa falið að tilkynna stækkun lóðarinnar til landupplýsingadeildar Þjóðskrár.

Fundi slitið