Notendur hitaveitu Mývatnssveitar
Nú er komið að því að senda inn álestur á hitaveitumælum í ykkar fasteign eins og undanfarin ár. Við viljum biðja ykkur um að senda inn álestur fyrir áramót.
Svona farið þið að:
Takið mynd af hitaveitumælinum ef kostur er, sendið með tölvupósti á netfangið solrun@thingeyjarsveit.is
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja í tölvupóstinum: Heimilisfang, mælisnúmer, nafn og kennitala greiðanda og hvaða dag lesið er af.
Einnig er hægt að hringja eða koma við á skrifstofunni með sömu upplýsingar ásamt álestri. Athugið opnunartíma skrifstofu yfir jól og áramót.
Ef þið þurfið aðstoð við álesturinn hafið þá samband við skrifstofu.
Athugið að ef fleiri en einn hitaveitumælir er í fasteigninni þarf að senda inn álestur af öllum mælunum ásamt mælisnúmerum.
Skilafrestur er til og með 31. desember 2022.
Leiðbeiningar um álestur á hitaveitumælum má sjá hér: https://www.youtube.com/watch?time_continue=11&v=hT6ZIGNrVL0
Við minnum ykkur á að láta okkur vita ef það verða breytingar á greiðendum mæla eða staðsetningu.
Eins og ykkur er kunnugt um eru hitaveitureikningar ársins byggðir á áætlun um hitaveitunotkun sem við reynum að láta endurspegla sem best raunverulega notkun. Notendur fá þá mánaðarlega senda áætlunarreikninga.
Eftir álesturinn er uppgjörsreikningur sendur út til viðskiptavina. Þar kemur raunnotkun liðins árs fram og þar með kemur í ljós hvort viðskiptavinur á inneign eða er í skuld vegna næstliðins árs. Viðskiptavinir geta því átt von á reikningum með annarri krónutölu en þeir eru vanir.
Oft liggur skýringin á aukinni notkun á heimilinu en stundum kann að vera að um bilun sé að ræða. Dæmi um þetta eru bilaðir ofnkranar eða bilun í stýribúnaði húsveitu sem veldur sírennsli vatns. Þá er mögulegt að áætlun eða álestur sé rangur.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Þingeyjarsveitar í Reykjahlíð í síma 464-6660.
Þökkum góð viðbrögð
Hitaveita Mývatnssveitar