S
M
Þ
M
F
F
L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
11
14
17
18
20
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
21. maí 2012
19. júní 2012
Myndavefur Þingeyjarsveitar

Hér er síða ætluð til þess að geyma ýmislegt skondið sem rekur á fjörur vefumsjónarmanns, s.s. vísur og skemmtileg skilaboð.

 

Á dögunum birtist í Morgunblaðinu frétt Atla Vigfússonar um þyngsta köttinn í Þingeyjarsveit, heimilisköttinn á Hólum í Reykjadal. Þá voru menn í kosningaham og í nýjasta tölublaði Bændablaðsins má sjá hagyrðinga velta þessum málum fyrir sér. 

Í Bændablaðinu segir: Hjálmar var í miklu pólitísku stuði rétt fyrir kosningar og sagði á Leirnum og orti síðan: ,,Ég var að fletta Mogganum í dag. Lengi vel er þar á annarri hverri síðu heilsíðumynd af pólitíkusum. Þegar kemur á síðu 9 er hins vegar mynd af þyngsta ketti í Þingeyjarsveit, heimiliskettinum á Hólum í Reykjadal.
 

Ýmislegt ég ekki veit,

eitt ég nefni:

Er þyngsti köttur í Þingeyjarsveit

þingmannsefni?"

 

Kristján Eiríksson frá Fagranesi svaraði Hjálmari og sagði og orti síðan:

,,Þess eru dæmi að menn hafi valið skepnur til æðstu metorða og er það frægast þegar Þrændir tóku hundinn Saur sér til konungs (sbr. XII kafla í Hákonar sögu góða í Heimskringlu: ,,Þeir létu síðan í hundinn þriggja manna vit og gó hann til tveggja orða en mælti hið þriðja," o.s.frv. Því skyldu kvótagreifar norðlenskir þá ekki eins geta valið kött?

 

Best mun reynast gegn voða og vá,

vondu árferði og kvótastandi

til þingsetu að velja Þorstein Má

og þyngsta köttinn á Norðurlandi."

 

Fréttir af nýburagjöfum sveitarfélagsins hafa vakið athygli en sveitarstjóri heimsækir foreldra nýbura með bleyjubunka meðferðis. Er óhætt að segja að allir hafi tekið þessum fréttum með bros á vör og skemmtilegur andi ríkt í þeim heimsóknum sem afstaðnar eru. Og síðan eru til menn sem vilja ganga lengra til að fjölga fólkinu í sveitinni, eins og til dæmis Einar Kristjánsson á Ófeigsstöðum í Kinn sem orti eftirfarandi vísu en í henni er einnig vísað til þess að sveitarfélagið studdi nýverið útgáfu á geisladiski með bárðdælskum tónum:

 

Bleyjur og diskar bera hæst

batnar sveitarstefið.

Viagra nú verður næst

völdum mönnum gefið!

 

Og Jón Heiðar Steinþórsson, oddviti Tjörneshrepps, sendi þessa vísu eftir að hafa kíkt á heimasíðuna okkar:

 

Ef nýburinn æpir og orgar,

inn stormar Reynisson góður

með helling af bleyjum sem borgar

hinn blessaði Jöfnunarsjóður.