Endurvinnslugámar í Þingeyjarsveit eru staðsettir við skólana í Þingeyjarsveit, þ.e. Hafralækjarskóla, Litlulaugaskóla og Stórutjarnaskóla. Í þessa gáma má setja bylgjupappa, dagblöð og tímarit, skrifstofupappír, fernur og sléttan pappa, umbúðaplast og málma.

Allir þessir gámar eru læstir og eru skólarnir með lykla, á Stórutjörnum er húsvörðurinn með lyklavöld , í Litlulaugaskóla er það skólastjórinn og á Hafralæk er lykilinn  geymdur á kaffistofu starfsfólks.

Við Jónasarvelli í Aðaldal er gámaplan þar sem eru gámar fyrir dagblöð og tímarit annars vegar og sléttan pappa og fernur hins vegar, auk járna- og timburgáma og gáma fyrir almennt sorp.

 

Gámar fyrir almennt, brennanlegt heimilis- og rekstrarsorp: Almenn gildir að þessir gámar séu fyrir brennanlegt heimilis- og rekstrarsorp ásamt pappa, pappír og plasti sem ekki nýtist eða kemst í endurvinnslu (að því gefnu að það komist í gámana). Í þessa gáma á ekki að fara slátur- og fiskúrgangur, heyrúlluplast, hjólbarðar, málning og spilliefni.

 

Gámar fyrir járn: Almennt gildir að málmar fari í þessa gáma, þó með þeim fyrirvara að það komist í gámana með skynsömum hætti. Í þessa gáma á ekki að setja fólksbíla, vörubíla, vinnuvélar eða önnur tæki sem þarf að afskrá og tæma af olíum, bensíni, síum og rafgeymum. Slík tæki á að fara með til viðurkenndra aðila sem sjá um afskráningu og tæmingu s.s. Sorpsamlags Þingeyinga á Húsavík eða viðurkenndra aðila á Akureyri (s.s. partasölur, Hringrás). Hjólbarðar eiga ekki erindi í þessa gáma frekar en plast ýmis konar. Bent er á að ef farið er rétta leið með ökutæki og vinnuvélar vegna afskráningar, og tækin fari ekki í járnagáma, þá þarf sveitarfélag ekki að greiða eyðingargjald vegna og fyrir viðkomandi tæki.

 

Gámar fyrir timbur: Í þessa gáma fer allt timbur sem kemst fyrir með skynsömum hætti og stendur ekki út fyrir eða hátt upp úr. Ekki væri t.d. ásættanlegt að setja heilan timburskúr eða trillu í gámana sem stæði út fyrir og upp úr gámum. Í þessa gáma á ekki að fara garðaúrgangur, s.s. gras, hvönn eða runnar, slíkt á að vera hægt að endurnýta á viðkomandi býlum. Húsgögn sem eru að mestu brennanleg en ekki endilega úr timbri að öllu leyti mega fara í þessa gáma.

 

Varðandi hjólbarða þá er bent á hjólbarðaverkstæðið á Laugum en Bílaþjónustan á Húsavík sér um að safna hjólbörðum og koma þeim til Sorpsamlagsins

 

Kör fyrir spilliefni er staðsett á gámasvæði á Laugum og sér Sagaplast-Endurvinnslan um þjónustu á þeim.

 

Ekki eru ílát fyrir óbrennanlegt sorp s.s. gler, gips, múrbrot, steinull og þess háttar í Þingeyjarsveit en tekið er við slíku í sorpbrennslustöðinni á Húsavík.

 

Á Húsavík er hafin söfnun á raf- og rafeindatækjum en ekki eru komin ílát fyrir slíka söfnun í öðrum sveitarfélögum. Stefnt er að setja út ílát fyrir minni tæki á Laugum   sem verða þjónustuð af Sagaplast, en ekki liggur fyrir hvernig verður átt við stærri tæki s.s. ískápa, frystikistur, ofna o.þ.h.