Sveitarstjórn, fundur nr. 96

Dags. 9.2.2012

 

FUNDARGERÐ

 

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar

96. fundur

í Kjarna fimmtudaginn 9. febrúar  2012 kl. 13:00

 

 

 

Dagskrá:

 

1.      Fundarsetning.

2.      Þriggja ára fjárhagsáætlun.

3.      Fundargerð Brunavarnarnefndar frá 31.01.2012.

4.      Fundargerð Atvinnumálanefndar frá 01.02.2012.

5.      Erindi frá húsverði félagsheimilisins Breiðumýri.

 

Til kynningar:

 

a) Fundargerð Heilbrigðisnefndar N.ey. Frá 24.01.2012

            b) Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 793

 

Mætt: Ólína Arnkelsdóttir, Arnór Benónýsson,  Ásvaldur Þormóðsson,  Ásta Svavarsdóttir, Friðrika Sigurgeirsdóttir Margrét Bjarnadóttir og Árni Pétur Hilmarsson auk sveitarstjóra sem ritaði fundargerð.

 

 

1.      Fundarsetning:

Oddviti setti fund. Hann óskaði eftir að bætt yrði á dagskrá undir 6. lið; Aðalfundarboð Landssamtaka landseigenda, undir 7. lið; Skipan í búfjáreftirlitsnefnd og undir 8. lið; Skipan tveggja fulltrúa í samráðsnefnd skv. rammasamningi milli Þingeyjarsveitar og Þeistareykja ehf. Samþykkt samhljóða.

 

2.      Þriggja ára fjárhagsáætlun:

Lögð fram þriggja ára fjárhagsáætlun sveitarfélagsins til seinni umræðu. Fjármálastjóri mætti til fundarins undir þessum lið. Farið yfir fyrirliggjandi tillögu.

Tillagan samþykkt samhljóða.

 

3.      Fundargerð Brunavarnarnefndar frá 31.01.2012:

Frestað.

 

4.      Fundargerð Atvinnumálanefndar frá 01.02.2012:

Lögð fram fundargerð Atvinnumálanefndar frá 01.02.2012.

Friðrika gerði grein fyrir fundargerðinni. Rætt um samþykktir fyrir búfjárhald. Samþykkt að kynna hlutaðeigendum niðurstöður úttektar á beit á Þegjandadal og sveitarstjóra og formanni atvinnumálanefndar falið að funda með viðkomandi aðilum.

Fundargerðin staðfest að öðru leiti.

 

5.      Erindi frá húsverði félagsheimilisins Breiðumýri:

Lagt fram erindi frá húsverði félagsheimilisins Breiðumýri um möguleika á bættu aðgengi fyrir fólk með fötlun að snyrtingum félagsheimilisins og um leið að endurnýja salernisaðstöðu hússins.

Samþykkt að vísa málinu til Félags- og menningarmálanefndar.

 

6.      Aðalfundarboð Landssamtaka landeigenda:

Lagt fram fundarboð á aðalfund Landssamtaka landeigenda sem haldinn verður fimmtudaginn 16. feb. nk.

Samþykkt að sveitarstjóri sæki fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.

 

7.      Skipan í búfjáreftirlitsnefnd:

Samþykkt að skipa Gunnar Hallgrímsson og Snorra Kristjánsson sem fulltrúa Þingeyjarsveitar í sameiginlega búfjáreftirlitsnefnd Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps  til loka kjörtímabilsins og Sigurð Atlason til vara.

 

8.      Skipan tveggja fulltrúa í samráðsnefnd skv. rammasamningi milli Þingeyjarsveitar og Þeistareykja ehf:

Samþykkt að Ólína Arnkelsdóttir og Arnór Benónýsson verði fulltrúar Þingeyjarsveitar í samráðsnefnd skv. rammasamningi milli Þingeyjarsveitar og Þeistareykja ehf og Margrét Bjarnadóttir og Árni Pétur Hilmarsson til vara.

 

 

Til kynningar:

 

a)      Fundargerð Heilbrigðisnefndar N.ey. Frá 24.01.2012:

Lögð fram.

b)      Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 793:

Lögð fram.

 

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:20

 

Ólína Arnkelsdóttir

Arnór Benónýsson

Ásvaldur Þormóðsson

Ásta Svavarsdóttir

Friðrika Sigurgeirsdóttir

Árni Pétur Hilmarsson

Margrét Bjarnadóttir



Til baka