Skipulags- og umhverfisnefnd, fundur nr. 29

Dags. 31.1.2012

Skipulags og umhverfisnefnd 29. fundur 31. 01. 2012 kl. 17 00

 

 

Mætt eru Ásvaldur Ævar Þormóðsson, Þórunn Jónsdóttir, Hörður Þór Benónýsson, Guðrún Sigríður Tryggvadóttir og Sigurður Hlynur Snæbjörnsson sem ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn Gaukur Hjartarson skipulagsfulltrúi Þingeyinga.

 

Eignarskiptayfirlýsing í landi Hróarsstaða

 

Eigendur Hróarsstaða 153253, Þingeyjarsveit, óska eftir samþykki fyrir eignarskiptayfirlýsingu lóðarinnar, þ.e. hlutfallstölum og sérafnotahlutum samkvæmt uppdrætti frá  Verkfræðistofu Norðurlands frá 05. 01. 2012

Lóð nr. 202547 er þá jafnframt sameinuð lóð nr.  153253

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki erindið.

 

Erindi frá Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar frá 29. 12. 2011, vélhjólaumferð á Bíldsárskarði.

 

Formanni falið að hafa samráð við skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar.

 

Rauðaskriða 1

 

Kynnt afstöðumynd v/tillögu að byggingu gistihúss v/ferðaþjónustu Rauðuskriðu 1

 

Skipulagsnefnd leggur til að ekki verði heimilað að reisa fleiri mannvirki í Rauðuskriðu 1 fyrr en deiliskipulag hefur verið samþykkt fyrir svæðið samkvæmt ákvæðum aðalskipulags Þingeyjarsveitar.

 

Erindi frá eigendum Rangár í Kinn.

 

Óskað er eftir samþykki fyrir stofnun lóðar samkvæmt uppdrætti frá Búgarði frá 01. 12. 2011.

 

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki erindið.

 

Fyrirspurn frá Landsneti.

 

Fyrirspurn um lagningu 66kv jarðstrengs frá Höfuðreiðarmúla til Þeistareykja.

 

Skipulagsnefnd lítur svo á að framkvæmdin sé í samræmi við aðalskipulag Þingeyjarsveitar.

 

Þeistareykir, borvatnsveita/slökkvivatn.

 

Landsvirkjun óskar eftir að heimilað verði að nota borvatnsveitu á Þeistareykjum sem slökkvivatn fyrir 1. áfanga Þeistareykjavirkjunnar á byggingartíma.

 

Slökkviliðsstjóri Þingeyjarsveitar hefur tekið út borvatnsveituna og gerir ekki athugasemd við að hún sé notuð sem slökkvivatn.

 

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki erindið.

 

Erindi frá Byggingarfulltrúa.

 

Erindi frá byggingarfulltrúa Þingeyinga

Óskað er umsagnar skipulagsnefndar um erindi Clive Stacy f.h. eiganda Staðarhrauns í Aðaldal, þar sem óskað er eftir að húsið verði skráð „gistihús“ í stað „einbýlishús“.  Fyrir liggur úttekt eldvarnareftirlits og byggingarfulltrúa á húseigninni.

 

Skipulagsnefnd telur eðlilegt að skráningu hússins verði breytt til samræmis við notkun hússins og fellst því fyrir sitt leiti á skráninguna enda verði lagfæringar gerðar til samræmis við athugasemdir eldvarnareftirlits.

Fundi slitið kl. 19. 10

 

Ásvaldur Ævar Þormóðsson

Þórunn Jónsdóttir

Hörður Þór Benónýsson

Guðrún Sigríður Tryggvadóttir

Sigurður Hlynur Snæbjörnsson

 



Til baka