Atvinnumálanefnd, fundur nr. 13

Dags. 1.2.2012

13. fundur atvinnumálanefndar 1. febrúar 2012.

 

Mættir: Friðrika Sigurgeirsdóttir, Ásta Hrönn Hersteinsdóttir, Vagn Sigtryggsson, Garðar Jónsson í forföllum Eiðs Jónssonar  og Ásta Svavarsdóttir sem ritar fundargerð.

 

1.       Friðrika setur fund 20:10 og býður fundarmenn  velkomna.

 

2.       Skoðun skýrslu á beitarástandi á Þegjandadal, S-Þing.

Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 3. nóv. 2011  að leita eftir áliti sérfræðinga varðandi beitarþol og beitarstýringu á svæðinu.  Landgræðsla Ríkisins og Búgarður-Ráðgjafarþjónusta skiluðu skýrslu dagsettri 21.nóv 2011. Sú skýrsla lesin yfir.

 

3.       Samþykkt um búfjárhald í Þingeyjarsveit.

Sveitarstjórn samþykkti á fundi 3. Nóv. 2011 að fela Atvinnumálanefnd að vinna tillögu að samþykkt um búfjárhald í Þingeyjarsveit fyrir næsta vor. Vinna hafin við upplýsingaöflun og byrjað á drögum samþykktarinnar.

                                                     

Fleira ekki rætt og fundi slitið 22:20.

 

Ásta Svavarsdóttir

Friðrika Sigurgeirsdóttir

Ásta Hrönn Hersteinsdóttir

Vagn Sigtryggsson

Garðar Jónsson  



Til baka