Sveitarstjórn, fundur nr. 94
Dags. 12.1.2012
FUNDARGERÐ
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
94. fundur
í Kjarna fimmtudaginn 12. janúar 2012 kl. 13:00
Dagskrá:
1. Fundarsetning:
2. Veisusel - áhættumat:
3. Umferð vélhjóla um Bíldsárskarð:
4. Hróarsstaðir – eignaskiptasamningur:
5. Skipulagsfulltrúi:
Mætt: Ólína Arnkelsdóttir, Arnór Benónýsson, Ásvaldur Þormóðsson, Ásta Svavarsdóttir, Friðrika Sigurgeirsdóttir Margrét Bjarnadóttir og Árni Pétur Hilmarsson auk sveitarstjóra sem ritaði fundargerð.
1. Fundarsetning:
Oddviti setti fund. Hann óskaði eftir að tekið yrði á dagskrá undir 6. lið; Viðræður við Norðurþing um Hafralækjarskóla, undir 7. lið, Aðalfundur Hrafnabjargarvirkjunar og til kynningar fundargerð HNE nr. 140.
2. Veisusel - áhættumat:
Tekið fyrir erindi frá Teiti Jónssyni þar sem hann óskar eftir að því að framkvæmt verði hættumat vegna ofanflóða í Veisuseli.
Samþykkt að óska eftir því við Veðurstofu Íslands að gert verði hættumat vegna Veisusels með tilliti til ofanflóða. Sveitarstjóra falið að óska eftir matinu.
3. Umferð vélhjóla um Bíldsárskarð:
Lagt fram bréf frá Eyjarfjarðarsveit, dags. 29. desember 2011, varðandi umferð um Bíldsárskarð.
Samþykkt að vísa erindinu til Skipulags- og umhverfisnefndar og hún ræði við fulltrúa Eyjarfjarðarsveitar, fjallskilastjóra og landeigendur.
4. Hróarsstaðir – eignaskiptasamningur:
Eigendur lóðanna Hróarsstaða 153253 og 202547 óska eftir samþykki fyrir afmörkun lóðarinnar Hróarsstaðir 153253 samkv. teikningu frá Verkfræðistofu Norðurlands, dags. 23/2 2011, og um leið sameiningu lóðanna Hróarsstaðir 202547 og 153253.
Samþykkt að vísa erindinu til Skipulags- og umhverfisnefndar.
5. Skipulagsfulltrúi:
Gerð var grein fyrir stöðu mála og viðtölum við valda umsækjendur varðandi ráðningu sameiginlegs skipulagsfulltrúa fyrir Skútustaðahrepp og Þingeyjarsveit.
6. Viðræður við Norðurþing um Hafralækjarskóla:
Ólína gerði grein fyrir bréfi sem hún skrifaði Norðurþingi varðandi endurskoðun á rekstrarsamningi um skólahald í Hafralækjarskóla og húsnæðismál. Samþykkt að oddviti og varaoddviti gangi til samninga við Norðurþing og Tjörneshrepp um rekstur skólans og rekstur og eignarhald skólahúsnæðisins.
7. Aðalfundur Hrafnabjargavirkjunar:
Lagt fram fundarboð aðalfundar Hrafnabjargarvirkjunar sem haldinn verður 27. febrúar nk. í húsnæði OR. Samþykkt að sveitarstjóri fari með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
Til kynningar:
a) Fundargerð HNE nr. 140:
Lögð fram.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:15
Ólína Arnkelsdóttir
Arnór Benónýsson
Ásvaldur Þormóðsson
Ásta Svavarsdóttir
Friðrika Sigurgeirsdóttir
Árni Pétur Hilmarsson
Margrét Bjarnadóttir
Til baka