Sveitarstjórn, fundur nr. 93

Dags. 29.12.2011

 

FUNDARGERÐ

 

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar

93. fundur

í Kjarna fimmtudaginn 29. desember  2011 kl. 10:00

 

Dagskrá:

 

1.      Fundarsetning:

2.      Fundargerð samráðshóps Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps frá 20.12.11:

3.      Erindisbréf starfshóps:

4.      Gjaldskrá:

5.      Samningur vegna Þeistareykja:

6.      Atvinnuefling Þingeyjarsveitar:

 

 

Til kynningar:

a)      Fundargerð stjórnar sambands ísl.sv.fél. frá 16.12.2011:

 

Mætt: Ólína Arnkelsdóttir, Arnór Benónýsson,  Ásvaldur Þormóðsson,  Ásta Svavarsdóttir, Friðrika Sigurgeirsdóttir Margrét Bjarnadóttir og Árni Pétur Hilmarsson auk sveitarstjóra sem ritaði fundargerð.

 

 

 

1.      Fundarsetning:

Oddviti setti fund. Hann óskaði eftir að tekið yrði á dagskrá undir 5. lið; Fundargerð Ungmennaráðs Þingeyjarsveitar frá 14.12.11. og erindi frá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga til kynningar.

 

2.      Fundargerð samráðshóps Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps frá 20.12.11:

Lögð fram fundargerð samráðshóps Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps frá 20.12.11. Vegna 2. liðar samþykkir sveitarstjórn að segja upp samningi við Norðurþing um byggingarfulltrúa svo svigrúmi skapist til að ákvarða fyrir árslok 2012 hvort væntanlegur skipulagsfulltrúi gegni jafnframt starfi byggingarfulltrúa þegar til kemur.

 

3.      Erindisbréf starfshóps:

Lögð fram drög að erindisbréfi fyrir starfshóp sem leggi til leiðir við sameiningu Hafralækjarskóla og Litlulaugaskóla. Drögin samþykkt með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.

 

4.      Gjaldskrá:

Lögð fram svohljóðandi tillaga að gjaldskrá fyrir hreinsun, tæmingu og eftirlit rotþróa í Þingeyjarsveit 2012:

 

1.      gr.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar er heimilt að innheimta árlega gjöld vegna hreinsunar rotþróa á vegum sveitarfélagsins samkvæmt gjaldskrá sem sett er samkvæmt 5. mgr. 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með síðari breytingum, að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar.

Fyrir hverja fasteign innan marka Þingeyjarsveitar  með eigin fráveitu, eða fráveitu sem ekki er tengd holræsakerfi í eigu Þingeyjarsveitar, skal greiða árlegt þjónustugjald, sbr. 4.gr. samþykktar um hreinsun og losun rotþróa á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra, að undanteknum Húsavíkurbæ.  Greiða skal sérstakt gjald fyrir hverja rotþró, ef fleiri en ein rotþró er á sömu fasteign.  Undanþegnir frá gjaldskyldu eru aðilar sem framvísa samningi um tæmingu rotþróa við þjónustuaðila með gilt starfsleyfi heilbrigðiseftirlits, sbr. 3. gr. samþykktar um hreinsun og losun rotþróa á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra, að undanteknum Húsavíkurbæ.  Ef fleiri en ein húseign er tengd rotþró skal þjónustugjaldi deilt með jöfnum hætti á fasteignir, nema ef sýnt er fram á aðra eignar- eða notkunarskiptingu á þrónni.

2.      gr.
Árlegt gjald fer eftir stærð rotþróa og er eftirfarandi miðað við tveggja ára losun:

 

      0-4000 lítrar                          9.642- kr.                                          

4001-6000 lítrar                      12.802- kr.

6000 lítrar og yfir                     Innheimt 6.000-kr. fyrir hvern rúm. umfram 6000 lítra

 

    

Séu rotþrær losaðar árlega skal innheimt sem hér segir:

 

      0-4000 lítrar                          19.284-kr.

      4001-6000 lítrar                     25.604-kr.

      6000 lítrar og yfir                   Innheimt 6.000-kr. fyrir hvern rúm. umfram 6000 lítra

 

Endurkomugjald (þ.e. ef þró er ekki tilbúin) 50% álag miðað við stærð þróar.

 

Fjárhæð árgjalds miðast við að tæming og skoðun rotþróar eigi sér stað annað hvert ár.  Komi fram beiðni um eða ef nauðsynlegt er að tæma rótþró sérstaklega, skal greiða samkvæmt reikningi verktaka.

Fjárhæð árgjalds miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að nota lengri barka en 50 metra.  Ef leggja þarf lengri barka en 50 metra þá leggjast við kr. 7.000.

Gjalddagi og innheimta þjónustugjalds skv. 2. gr. fer fram með sama hætti og á sama tíma og álagning fasteignaskatts.  Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari er heimilt að innheimta með fjárnámi í fasteign sem rotþró tengist án tillits til eignendaskipta.  Njóta gjöldin lögveðréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

  

3.  gr.

Gjaldskrá þessi er samin á grundvelli samþykktar um hreinsun og losun rotþróa á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra að undanskildum Húsavíkurbæ frá 1. september, nr. 671/2003. Gjaldskráin er samin og samþykkt af sveitarstjórn Þingeyjarsveitar og staðfest á fundi hennar þann 29. desember  2011. Jafnframt fellur úr gildi fyrri gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa í Þingeyjarsveit nr. 1144/2010.

 

Samþykkt samhljóða.

 

5.      Fundargerð Ungmennaráðs Þingeyjarsveitar frá 14.12.11:

Lögð fram fundargerð Ungmennaráðs Þingeyjarsveitar frá 14.12.11.

Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina.

 

6.      Samningur vegna Þeistareykja:

Lagður fram rammasamningur milli Þingeyjarsveitar og Þeistareykja ehf. um lóðarleigu og fl., dags. 27. desember 2011, ásamt lóðaleigusamningi, einnig dags. 27. desember 2011.

Sveitarstjórn staðfestir samningana.

 

7.      Atvinnuefling Þingeyjarsveitar:

Tekinn fyrir liður 3 í fundargerðar Atvinnueflingar frá síðasta fundi. Fjármálastjóri mætti til fundarins undir þessum lið.

Lagt er til að selja Atvinnueflingu Þingeyjarsveitar hlut sveitarsjóðs í Þeistareykjum ehf. að upphæð 4.928.600 kr. Jafnframt lagt til að leggja Atvinnueflingu Þingeyjarsveitar aukið hlutafé sem nemur kaupverðinu.

Samþykkt samhljóða.

 

 

Til kynningar:

a)      Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga frá 16.12.2011:

Lögð fram.

b)      Erindi frá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga:

Lagt fram.

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:40

 

Ólína Arnkelsdóttir

Arnór Benónýsson

Ásvaldur Þormóðsson

Ásta Svavarsdóttir

Friðrika Sigurgeirsdóttir

Árni Pétur Hilmarsson

Margrét Bjarnadóttir



Til baka