Sveitarstjórn, fundur nr. 92
Dags. 15.12.2011
FUNDARGERÐ
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
92. fundur
í Kjarna fimmtudaginn 15. desember 2011 kl. 13:00
Dagskrá:
1. Fundarsetning:
2. Umsóknir um starf skipulagsfulltrúa:
3. Fundargerð Atvinnueflingar Þingeyjarsveitarfrá 13.12.11.
4. Fundargerð Fræðslunefndar frá 12.12.11:
5. Fjárhagsáætlun Þingeyjarsveitar 2012 – síðari umræða:
Til kynningar:
a) Fundargerð 139. fundar HNE frá 09.11.11:
Mætt: Ólína Arnkelsdóttir, Arnór Benónýsson, Ásvaldur Þormóðsson, Ásta Svavarsdóttir, Friðrika Sigurgeirsdóttir Margrét Bjarnadóttir og Sigurður Hlynur Snæbjörnsson í forföllum Árna Péturs Hilmarssonar auk sveitarstjóra sem ritaði fundargerð.
1. Fundarsetning:
Oddviti setti fund. Hann óskaði eftir að tekið yrði á dagskrá undir 5. lið; Endurnýjun rekstrarleyfis - umsögn, undir 6. lið; Leyfisbeiðni fyrir flugeldasýningu, 7. lið; Verksamningur um tæmingu rotþróa, undir 8. lið; Umsögn um nýtingu leirs og undir 9. lið: Fundagerð starfshóps um sameiningu Hafralækjarskóla og Litlulaugaskóla frá 06.12.11. Fjárhagsáætlun færist undir lið 10.
2. Umsóknir um starf skipulagsfulltrúa:
Alls hafa 16 umsóknir borist frá 15 einstaklingum og einu fyrirtæki. Úrvinnslu þeirra vísaðtilsamstarfshóps Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar og sveitarstjóra sveitarfélaganna.
Samþykkt samhljóða.
3. Fundargerð Atvinnueflingar Þingeyjarsveitar frá 13.12.11:
Lögð fram fundargerð Atvinnueflingar Þingeyjarsveitar frá 13.12.11. Þar kemur fram boð á hlutahafafund þann 29. des. nk. en sveitarfélagið er eini hluthafinn. Oddviti fari með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
Lið 3 vísað til næsta fundar.
4. FundargerðirFræðslunefndar frá 12.12.11:
Lögð fram fundargerð Fræðslunefndar frá 12.12.11. Margrét gerði grein fyrir fundargerðinni. 1. lið vísað til fjárhagsáætlunar.
Fundargerðin samþykkt að öðru leyti.
5. Endurnýjun rekstrarleyfis - umsögn
Tekin fyrir umsagnabeiðni Sýslumannsins á Húsavík vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi til handa Unnsteini Ingasynifyrir Ferðaþjónustuna Narfastöðum.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við erindið.
6. Leyfisbeiðni fyrir flugeldasýningu:
Tekið fyrir erindi frá Hjálparsveit skáta í Aðaldal um leyfi til að halda flugeldasýningu í tengslum við barnaball á Ýdölum þann 29. des. nk. Sýningin verði haldinn um kl. 17.
Sveitarstjórn samþykkir erindi fyrir sitt leyti.
7. Verksamningur um tæmingu rotþróa:
Lögð fram drög að nýjum samningi milli Hreinsitækni ehf. og Þingeyjarsveitar, dags. 9. des. 2011. Sveitarstjórn samþykkir samninginn með smávægilegum breytingum.
Sveitarstjóra falið að ganga frá samningum.
8. Umsókn um nýtingu leirs:
Tekin fyrir umsókn frá Ástu Hrönn Björgvinsdóttur um nýtingu leirs sem fellur til á Þeistareykjum við framkvæmdir þar. Sveitarstjórn tekur vel í erindið og felur sveitarstjóra að ganga til samninga við umsóknaraðila.
9. Fundagerð starfshóps um sameiningu Hafralækjarskóla og Litlulaugaskóla frá 06.12.11:
Lögð fram fundargerð starfshóps um sameiningu Hafralækjarskóla og Litlulaugaskóla frá 06.12.11. Ólína gerði grein fyrir fundargerðinni.
Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina.
10. Fjárhagsáætlun Þingeyjarsveitar 2012 – síðari umræða:
Teknar fyrir tillögur að gjaldskrám sveitarfélagsins fyrir næsta ár. Eftirfarandi tillögur teknar til afgreiðslu:
SUNDLAUGIN Á LAUGUM - GJALDSKRÁ 2012
Börn 15 ára og yngri Frítt
Öryrkjar og aldraðir Frítt
Fullorðnir eitt skipti 450 kr
Fullorðnir 10 miðar 3.000 kr
Kort:
Fullorðnir 3 mán. 7.800 kr
Fullorðnir 6 mán. 15.500 kr
Fullorðnir 12 mán. 28.000 kr
Leiga:
Leiga á sundfötum 500 kr
Leiga á handklæði 500 kr
Tilboð:
Sund, sundföt og handklæði 1.000 kr
Samþykkt af sveitarstjórn Þingeyjarsveitar 15.12.2011
Gjaldskráin gildir frá 1. janúar 2012
Samþykkt samhljóða.
HEIMAÞJÓNUSTA ÞINGEYJARSVEITAR - Gjaldskrá 2012
Fyrir þjónustu veitta skv. reglugerð um heimilisþjónustu, skal sá
er þjónustu nýtur greiða gjald samkvæmt eftirfarandi gjaldflokkum:
1. taxti - kr. 0,00 fyrir hverja unna klukkustund.
Gildir fyrir þá einstaklinga sem hafa minna en kr. 1.788.000- í árstekjur
og hjón/sambúðarfólk sem hafa minna en kr. 2.922.000- í árstekjur
2. taxti - kr. 365,00 fyrir hverja unna klukkustund.
Gildir fyrir þá einstaklinga sem hafa kr. 1.788.001- 2.324.000- í árstekjur og hjón/sambúðarfólk sem hafa kr. 2.922.001-3.798.000- í árstekjur
3. taxti - kr. 664,00 fyrir hverja unna klukkustund.
Gildir fyrir þá einstaklinga sem hafa kr. 2.324.001- 3.021.000- í árstekjur og hjón/sambúðarfólk sem hafa kr. 3.798.001- 4.938.000- í árstekjur
4. taxti - kr. 974,00 fyrir hverja unna klukkustund.
Gildir fyrir þá einstaklinga sem hafa meira en kr. 3.021.000- í árstekjur
og hjón/sambúðarfólk sem hafa meira en kr. 4.938.000- í árstekjur
Gjaldskráin uppfærist í janúar ár hvert í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs, grunnvísitala 363,4.
Tekjumörk miðast við hámark tekna frá Tryggingastofnun ríkisins, þ.e. lífeyri, tekjutryggingu og heimilisuppbót og uppfærast í samræmi við breytingar á þeim bótum ár hvert.
Samþykkt af sveitarstjórn Þingeyjarsveitar 15.12.2011
Gjaldskráin gildir frá 1. janúar 2012
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fyrir félagsheimili Þingeyjarsveitar 2012
Gildir fyrir Breiðumýri, Ljósvetningabúð, Ýdali* og Stórutjarnaskóla eftir því sem aðstaða er til staðar.
Fundir Verð 2010 Innifalið Tímalengd Annað
Lítill 11.000 Molakaffi m/v 4 klst
Stór 22.000 Molakaffi m/v 4 klst
Samkomur
Skólasamkomur, fermingar,
erfidrykkjur 27.500 Aðgangur að eldhúsi og áhöldum
Afmæli og veislur 38.500
Menningarviðburðir 10% af veltu, lágmark 20.000kr.
Staðfestingargjald kr. 22.000
Æfingartímar kr. 2.400 Afsláttur ef samið til lengri tíma
Þorrablót, árshátíðir,
dansleikir o.s.frv. 44.000 /<100, uppröðun og frágangu r +400 pr mann >100 Staðfestingargjald kr. 33.000
Ættarmót
Helgarleiga 2.300/1.200 Tjaldstæði, eldhús, Staðfestingargjald kr. 33.000
pr.mann/barn annar búnaður, aðgangur að sturtum og salernisaðstöðu
Aukalega greitt f/svefnpokapláss
Svefnpokapláss dýna 1.750 kr pr.nótt
Svefnpokapláss rúm 3.400 kr pr.nótt
* Gjaldskrá á aðeins við um ættarmót, ekki fundi og samkomur
Ofan á allar upphæðir vegna gistingar bætast við 100 krónur vegna gistináttaskatts.
Gjaldskráin gildir frá 1. jan. 2012 til 1. sept. 2012.
Samþykkt samhljóða.
|
Gjaldskrá Dagforeldra 2012 |
|
Fullt gjald - foreldrar í sambúð eða giftir |
Kostnaður foreldra |
|
klst/dag |
Heildar
gjald |
Niður
greiðsla
1 barn |
Niður
greiðsla
2 börn |
Niður
greiðsla
3 börn |
1. barn Kostn.
foreldris |
2. börn Kostn.
foreldris |
3. börn Kostn.
foreldris |
|
4,0 |
29.280 |
18.560 |
42.480 |
69.080 |
10.720 |
16.080 |
18.760 |
|
4,5 |
32.940 |
20.880 |
47.790 |
77.715 |
12.060 |
18.090 |
21.105 |
|
5,0 |
36.600 |
23.200 |
53.100 |
86.350 |
13.400 |
20.100 |
23.450 |
|
5,5 |
40.260 |
25.520 |
58.410 |
94.985 |
14.740 |
22.110 |
25.795 |
|
6,0 |
43.920 |
27.840 |
63.720 |
103.620 |
16.080 |
24.120 |
28.140 |
|
6,5 |
47.580 |
30.160 |
69.030 |
112.255 |
17.420 |
26.130 |
30.485 |
|
7,0 |
51.240 |
32.480 |
74.340 |
120.890 |
18.760 |
28.140 |
32.830 |
|
7,5 |
54.900 |
34.800 |
79.650 |
129.525 |
20.100 |
30.150 |
35.175 |
|
8,0 |
58.560 |
37.120 |
84.960 |
138.160 |
21.440 |
32.160 |
37.520 |
|
Afsláttargjald - einstæðir foreldrar/báðir námsmenn/öryrkjar |
Kostnaður foreldra |
|
klst/dag |
Heildar
gjald |
Niður
greiðsla
1 barn |
Niður
greiðsla
2 börn |
Niður
greiðsla
3 börn |
1. barn Kostn.foreldris |
2 börn Kostn.foreldris |
3 börn Kostn.foreldris |
|
4,0 |
29.280 |
21.240 |
46.500 |
40.470 |
8.040 |
12.060 |
18.090 |
|
4,5 |
32.940 |
23.895 |
52.313 |
45.529 |
9.045 |
13.568 |
20.351 |
|
5,0 |
36.600 |
26.550 |
58.125 |
50.588 |
10.050 |
15.075 |
22.613 |
|
5,5 |
40.260 |
29.205 |
63.938 |
55.646 |
11.055 |
16.583 |
24.874 |
|
6,0 |
43.920 |
31.860 |
69.750 |
60.705 |
12.060 |
18.090 |
27.135 |
|
6,5 |
47.580 |
34.515 |
75.563 |
65.764 |
13.065 |
19.598 |
29.396 |
|
7,0 |
51.240 |
37.170 |
81.375 |
70.823 |
14.070 |
21.105 |
31.658 |
|
7,5 |
54.900 |
39.825 |
87.188 |
75.881 |
15.075 |
22.613 |
33.919 |
|
8,0 |
58.560 |
42.480 |
93.000 |
80.940 |
16.080 |
24.120 |
36.180 |
|
Afsláttarreglur |
|
25% afsláttur er veittur einstæðum foreldrum og öryrkjum |
|
25% afsláttur er veittur ef báðir foreldrar eru í fullu námi |
|
Systkinaafsláttur: |
|
2 börn |
50% afsláttur fyrir annað barnið |
|
3 börn |
75% afsláttur fyrir þriðja barnið
|
|
1 barn |
2 börn |
3 börn |
|
Gjald pr. Klst og niðurgreiðsla pr klst. |
1 |
1,5 |
1,75 |
|
Heildargjald |
366,00 |
732,00 |
1.098,00 |
|
Fullt gjald foreldra pr. Klst. |
134,00 |
201,00 |
301,50 |
|
25 % afsláttargjald foreldra pr. Klst |
100,50 |
150,75 |
226,13 |
|
Niðurgreiðsla án afsl. Pr. Klst |
232,00 |
348,00 |
522,00 |
|
Niðurgreiðsla m. 25% afsl pr. Klst.
|
265,50 |
398,25 |
597,38 |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Samþykkt af sveitarstjórn Þingeyjarsveitar 15.12.2011
Gjaldskráin gildir frá 1. janúar 2012
Samþykkt samhljóða.
GJALDSKRÁ fyrir fasteignaskatta, lóðarleigu, fráveitu- og vatnsgjald í Þingeyjarsveit 2012.
1. gr.
Fasteignaskattar:
A. 0,625% af fasteignamati:
Íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd í dreifbýli og jarðeignir, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði, öll hlunnindi og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.
B. 1,32% af fasteignamati ásamt lóðarréttindum:
Sjúkrastofnanir samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, skólar, heimavistir, leikskólar, íþróttahús og bókasöfn.
C. 1,65% af fasteignamati, ásamt lóðarréttindum:
Allar aðrar fasteignir, svo sem iðnaðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði, fiskeldismannvirki, veiðihús og mannvirki sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu.
Gjalddagar eru átta: 1. feb. 1. mars, 1.apríl, 1. maí, 1. júní ,1. júlí,1.ágúst og 1. september og eindagi 3. dag næsta mánaðar .Álagning sem er 20.000 kr. eða lægri er innheimt með einum gjalddaga þann 1. apríl
Reglur um afslætti af fasteignaskatti.
Reglur þessar gilda um lækkun fasteignaskatts af íbúðarhúsnæði að hluta, eða fullu, hjá elli- og örorkulífeyrisþegum sem búa sér í eigin húsnæði enda sé íbúðarhúsnæðið ekki notað til útleigu eða annarra nota.
Rétt til afsláttar eiga þeir;
a) sem verða 67 ára á árinu eða eldri.
b) sem eru orðnir örorkulífeyrisþegar fyrir 1. janúar 2012
Ef um hjón eða samskattað sambýlisfólk er að ræða, ræður aldur eða örorka þess lífeyrisþega sem skráður er eigandi í fasteignaskrá.
100% lækkun:
Einstaklingar með árstekjur allt að kr. 2.458.000.-
Hjón með árstekjur allt að kr. 3.390.000.-
50% lækkun:
Einstaklingar með árstekjur frá kr. 2.458.000,.- til kr. 3.072.000,-
Hjón með árstekjur frá kr. 3.390.000.- til kr. 4.279.000.-
Tekjuviðmið vegna afsláttar fasteignagjalda taki breytingum í samræmi við vísitölu neysluverðs til verðtryggingar 1. janúar hvert ár.
Annað verði óbreytt.
Við fráfall maka eða sambýlings skal fasteignaskattur af íbúðarhúsnæði sem fjölskylda hins látna á og býr í, felldur niður að fullu árið eftir fráfallið.
2. gr.
Vatns- og fráveitugjöld:
Vatnsgjald 0,20 % af fasteignamati
Aukavatnsgjald 0,40 % af fasteignamati
Fráveitugjald 0,12 % af fasteignamati.
3. gr.
Lóðarleiga:
Lóðarleiga 1,00 % af fasteignamati.
Lóðaleiga af landi samkvæmt sérstökum samningi þar um.
Gjaldskráin er samin og samþykkt af sveitarstjórn Þingeyjarsveitar og staðfest á fundi hennar þann 15.12.2011
Samþykkt samhljóða.
GJALDSKRÁ fyrir hreinsun, tæmingu og eftirlit rotþróa í Þingeyjarsveit 2012
Samþykkt að fresta afgreiðslu til næsta fundar.
GJALDSKRÁ fyrir sorphirðu í Þingeyjarsveit 2012.
1. gr.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar er heimilt að leggja á árlegt sorphirðugjald (sorphreinsi- og sorpeyðingargjöld) sem innheimta skal með fasteignagjöldum.
2. gr.
Gjaldið er sem hér greinir:
Íbúðir: 33.486- kr.
Sumarhús og íbúðir í árshlutanotkun: 16.820- kr.
Fyrirtæki:
Flokkur 1 9.117- kr.
Flokkur 2 16.820- kr.
Flokkur 3 26.724- kr.
Flokkur 4 66.810- kr.
Flokkur 5 75.000- kr.
Flokkur 6 133.620- kr.
Flokkur 7 198.858- kr.
Flokkur 8 267.240- kr.
Flokkur 9 300.000- kr.
Flokkur 10 534.480- kr.
Sveitarstjórn raðar fyrirtækjum og lögbýlum í flokka eftir eðli og umfangi starfsemi þeirra. Gjaldið er innheimt jafnhliða fasteignagjöldum og eru gjalddagar þeir sömu og þeirra.
Gjalddagar eru átta: 1. feb., 1. mars,1 .apríl, 1. maí, 1. júní ,1. júlí, 1.ágúst og 1. september.
3.gr
Kostnaður vegna pöntunar á járna- eða timburgám til einkanota er kr. 10.000,-
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 8. gr. samþykktar nr 541/2000 um sorphirðu sveitarfélaga á Norðurlandi eystra.
Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Þingeyjarsveitar og staðfest á fundi hennar þann 15.12.2011
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fyrir Hitaveitu Reykdæla, Hitaveitu Þingeyjarsveitar á Stórutjörnum
og kaldavatns- og fráveitur Þingeyjarsveitar
1. gr.
Hitaveita Reykdæla og Hitaveita Þingeyjarsveitar á Stórutjörnum selur afnot af heitu vatni úr veitukerfi sínu samkvæmt gjaldskrá þessari sem gildir frá og með 1. janúar 2012 fyrir orkuveitusvæði hitaveitunnar. Verð í gjaldskrá þessari er án virðisaukaskatts en virðisaukaskattur á húshitun og heimæðar hitaveitu er nú 7%. Á heimæðar kaldavatnsveitu leggst ekki vsk. Lesið er af mælum notenda í desember ár hvert með þeirri undantekningu að lesið er af mælum Laugafisks mánaðarlega.
2. gr.
Gjald fyrir afnot af hitaveituvatninu er sem hér segir:
a) Fyrir vatn 56° og heitara skv. mæli kr. 38,00pr. m3
b) Fyrir vatn 51° til 55° skv. mæli kr. 29,00pr. m3
c) Fyrir vatn 50° og kaldara skv. mæli kr. 22,00pr. m3
d) Orkugjald Laugafisks skv. mæli kr. 23,00pr.m3
e) Orkugjald á nýttu framhjárennsli kr. 15,00pr. m3
f) Sundlaugar einstaklinga kr. 18,00pr. m3
g) Mælagjald kr. 1.837pr. mánuð
Heimilt er að innheimta lokunargjald vegna vanskila eða misnotkunar. Hitaveitunni er einnig heimilt að setja búnað hjá notendum sem tryggir aðra notendur gegn óeðlilegum þrýstibreytingum og er starfsmönnum veitunnar einum heimilt að breyta stillingu hans.
Til að njóta sérstaks gjalds vegna vatns í sundlaugar einstaklinga skulu lagnir að þeim búnar sérstökum aukamæli.
Lífeyrisþegar njóta 30% afsláttar af rúmmetragjaldi sundlaugarvatns almennings.
3. gr.
Greitt er mánaðarlega samkvæmt áætlun sem miðuð er við álestur vegna notkunar og hitastigs árið á undan og spá um vatnsnotkun komandi árs. Þar til rennslismælir hefur verið settur upp eða mælir bilar áætlar veitan vatnsnotkun með hliðsjón af fyrri notkun og/eða hitaþörf viðkomandi húss. Mælisstærð er ákveðin af starfsmönnum hitaveitunnar.
4. gr.
Heimæðargjald Hitaveitu Reykdæla, og Hitaveitu á Stórutjörnum, og kaldavatnsveitna Þingeyjarsveitar skal vera 161.408 kr. fyrir eina heimæð og miðast verðið við að inntakið sé að hámarki 32mm. Fari heimæðin umfram 100 metra greiðast kr. 2.555 fyrir hvern metra. Veitunum er heimilt að breyta heimæðargjaldi þessu í samræmi við breytingu á nefndri vísitölu. Gjald fyrir sérstaka hitaveitu með sérinntaki úr stofnlögn í útihús skal vera hið sama og almennt heimæðagjald.
Þá skal innheimt T-gjald (tengi-gjald) þegar lagt er í hús utan skipulagðrar íbúðabyggðar sveitarfélagsins þar sem sveitarfélagið hefur skyldur samkv. samningi. T-gjaldið skal vera 120.093 kr.fyrir heitt vatn, 65.730 kr. fyrir kalt vatn og fyrir fráveitu 60.416 kr. Öll gjöld samkvæmt grein þessari eru bundin vísitölu byggingarkostnaðar 1. desember 2007, 377,7 stig.
5. gr.
Innifalið í heimæðargjöldum er lögn frá stofnæð inn fyrir vegg með stofnloka, rennslismæli og inntaksloka við hann sem eru eign veitnanna. Aðrar lagnir og búnað húsgrindar og búnað vegna hitaveitu innanhúss leggur húseigandi til og eru því eign hans.
6. gr.
Hitaveitan hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð viðskiptamanns sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld skv. gjaldskrá þessari. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með 5 daga fyrirvara. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá sem vanskilunum veldur, hverju sinni 4.367 kr.
Gjaldskrá þessi var þannig samþykkt af sveitarstjórn Þingeyjarsveitar þann 15.12.2011 og tekur gildi 1.janúar 2012.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fyrir hundahald í Þingeyjarsveit
1. gr.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur sett sveitarfélaginu samþykkt um hundahald skv. samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
2. gr.
Árlega innheimtir sveitarsjóður gjald sem ætlað er til að framfylgja samþykktinni fyrir þá hunda sem leyfi er veitt fyrir sbr. gjaldskrá þessa.
3. gr.
Gjaldskráin er sem hér segir:
a. Almennt gjald er 7.400 kr. á ári. Hundahreinsunargjald innifalið.
b. Handsömunargjald er 3.700 kr. í fyrsta sinn, 8.000 kr. í annað sinn.
Gjaldskrá þessi tekur gildi 1. janúar nk.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá 2012 fyrir leikskóla í Þingeyjarsveit.
Verð pr. mánaðarklst. kr. 598 kr
Aukagjald skal innheimt í hvert skipti sem barn er sótt of seint, 500 kr. reiknast á hverjar byrjaðar 15 mínútur.
Dæmi: Barn er í vistun samtals 20 klst. á viku. Gjaldið verður því 20 x 598 = 11.960 kr
Dæmi : Barn er í vistun samtals 36 klst. á viku. Gjaldið verður því 36 x 598 = 21.528 kr
Dæmi: Barn er í vistun samtals 40 klst. á viku. Gjaldið verður því 40 x 598 = 23.920 kr
Við útreikning á gjöldum er ávallt reiknað með 4 vikum í mánuði.
Afsláttarreglur:
25 % afsláttur er veittur einstæðum foreldrum og öryrkjum.
25% afsláttur er veittur ef báðir foreldrar eru í fullu námi.
Systkinaafsláttur er eftirfarandi:
2. barn 50%
3. barn 75%
4. barn 75%
Afsláttur er veittur af því gjaldi sem lægra er ef um mislanga vistun systkina er að ræða.
Ekki er veittur afsláttur á afslátt ofan.
Ef ekki er greitt innan 3 mánaða þá þarf að semja um greiðslu til að halda vistun.
Gjaldskráin tekur gildi 1. janúar 2012
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá 2012 fyrir tónlistarnám í skólum Þingeyjarsveitar.
Hálft nám – 30 mín* 17.553 kr
45 mín. 21.339 kr
Fullt nám - 60 mín. 26.387 kr
Afslættir:**
Fyrir annað barn 25%
Fyrir þriðja barn 50%
Fyrir fjórða barn 75%
*Fyrir 2 x hálft nám verður þó aldrei greitt meira en sem nemur heilu námi, þ.e. 25.300,-
** Varðandi afslátt skal tekið fram að einungis verður um systkinaafslátt að ræða, ekki fjölskylduafslátt. Systkinaafsláttur gildir til 18 ára aldurs.
Fyrir 20 ára og eldri og fólk utan Þingeyjarsveitar reiknast 25% álag á gjaldskrána.
Ef fyrri önn hefur ekki verið greidd fær nemandi ekki inngöngu á næstu önn, nema samið sé um það sérstaklega.
Missi nemandi úr fleiri kennslustundir vegna forfalla kennara en sem nemur 15% af áætluðu kennslumagni á önn, skal koma til endurgreiðslu á skólagjöldum í hlutfalli við fjölda tapaðra tíma umfram 15%, sé ekki kostur að bæta nemandanum upp þessa tíma. Ef kennari verður veikur og bætir nemanda upp tapaða kennslustund (vegna fyrri ákvæða) skal hann fá það greitt aukalega.
Gjaldskrá þessi var samþykkt á fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar 15.12.2011 og
gildir frá 1. janúar 2012.
Samþykkt samhljóða.
Tekin fyrir að nýju fjárhagsáætlun Þingeyjarsveitar fyrir árið 2012 ásamt þeim breytingum sem gerðar voru á milli funda.Fjárhagsáætlun Þingeyjarsveitar fyrir árið 2012 svo breytt samþykkt samhljóða.
Helstu niðurstöður eru þær að rekstrarhalli aðalsjóðs er áætlaður upp á rúmar 11 milljónir króna en rekstrarafgangur aðalsjóðs og fyrirtækja samtals upp á tæpar 4 milljónir króna. Áætlað veltufé frá rekstri nemur rúmum 43 milljónir króna.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:15
Ólína Arnkelsdóttir
Arnór Benónýsson
Ásvaldur Þormóðsson
Ásta Svavarsdóttir
Friðrika Sigurgeirsdóttir
Sigurður Hlynur Snæbjörnsson
Margrét Bjarnadóttir
Til baka