Brunavarnarnefnd, fundur nr. 7

Dags. 6.12.2011

Fundargerð brunavarnanefndar    06.12.2011 

 

 

Sjöundi  fundur í sameiginlegri brunavarnanefnd Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps, haldinn á skrifstofu Þingeyjarsveitar á Laugum þann 6. desember 2011 kl.16:30.

 

Mætt voru: Bjarni Höskuldsson slökkviliðsstjóri, Arnór Benónýsson formaður, Hólmgeir Hallgrímsson og Þórunn Jónsdóttir.  Kristján Jóhannesson fjármálastjóri Þingeyjarsveitar sat fundinn undir 4. lið fundargerðar.

 

1.                  Niðurstaða í tjónabótamáli vegna ósontjóns í slökkvistöðinni á Laugum.  Náðst hefur samkomulag milli Þingeyjarsveitar og Vátryggingafélags Íslands um greiðslur bóta að upphæð 9,5 miljónum króna. Þær eru greiddar úr ábyrgðartryggingu verktakans sem annaðist frágang ósonbúnaðar.

2.                  Tryggingafélagið VÍS hefur samþykkt að greiða Þingeyjarsveit styrk að upphæð 500.000 til að efla Brunavarnir í sveitarfélaginu.. 

3.                  Staðan í eldvarnaeftirliti sveitarfélaganna.  Slökkviliðsstjóri skýrði frá stöðu mála,  sagði m.a. frá heimsóknum sínum í stofnanir og fyrirtæki á starfssvæðinu og að  haldnar hafi verið  rýmingaræfingar í þremur skólum. Slökkviliðsstjóri telur stöðu mála almennt nokkuð góða í þeim fyrirtækjum og stofnunum sem hann hefur heimsótt.  Rætt var um hvernig best væri að ná til bænda og fól nefndin slökkviliðsstjóra að hafa samband við forsvarsmenn faggreinafélaga bænda um mögulega þátttöku í félagsfundum þar sem farið yrði yfir eldvarnir á  lögbýlum.  Ennfremur var rætt um mögulegt samstarf við björgunarsveitir um kortlagningu á vatnsbólum á starfssvæðinu.

4.                  Fjárhagsáætlun.  Farið var yfir þá liði sem snúa að brunamálum í fjárhagsáætlun Þingeyjarsveitar fyrir árið 2012.  Nefndin leggur til við sveitarstjórn Þingeyjarsveitar að fyrirliggjandi drög að áætlun um brunamál verði tekin inn í fjárhagsáætlun fyrir árið 2012. Ennfremur leggur nefndin til við sveitarstjórnir Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar að við gerð fjárhagsáætlana verði  2 milljónir króna áætlaðar til kaupa á búnaði og vísar í því sambandi til 6. gr. samnings milli Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar um samrekstur slökkviliðs og eldvarnareftirlits. 

 

 

                        Næsti fundur er fyrirhugaður í Mývatnssveit þann 24. janúar 2012.

                                              Fleira ekki bókað og fundi slitið kl. 18:45

 

                                                             Þórunn Jónsdóttir

 



Til baka