Sveitarstjórn, fundur nr. 91

Dags. 8.12.2011

FUNDARGERÐ

 

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar

91. fundur

í Kjarna fimmtudaginn 8. desember  2011 kl. 13:00

 

 

 

Dagskrá:

 

1.      Fundarsetning:

2.      Samband orkusveitarfélaga:

3.      Deiliskipulag Þeistareykja:

4.      Fundargerð Fræðslunefndar frá 28.11.11 og 05.12.11:

5.      Greiðsla fyrir nefndarstörf:

6.      Bréf frá foreldrafélagi Hafralækjarskóla:

7.      Fundargerð rekstrarnefndar Hafralækjarskóla frá 01.12.11:

8.      Fundargerð Félags- og menningarmálanefndar frá 22.11.11:

9.      Fundargerð Skipulags- og umhverfisnefndar frá 07.12.11:

10.  Fundargerð Héraðsnefndar frá 16.11.11. ásamt fjárhagsáætlun 2012:

11.  Fundargerðir MMÞ frá 8.9., 4.10. og 16:11. 2011 og fjárhagsáætlun 2012:

12.  Fundargerð Brunavarnarnefndar frá 06.12.11:

13.  Fjárhagsáætlun Þingeyjarsveitar 2012 – fyrri umræða:

 

Til kynningar:

 

a)      Fundargerð 139. fundar HNE frá 09.11.11:

 

Mætt: Ólína Arnkelsdóttir, Arnór Benónýsson,  Ásvaldur Þormóðsson,  Ásta Svavarsdóttir, Friðrika Sigurgeirsdóttir Margrét Bjarnadóttir og Sigurður Hlynur Snæbjörnsson í forföllum Árna Péturs Hilmarssonar auk sveitarstjóra sem ritaði fundargerð.

 

 

1.      Fundarsetning:

Oddviti setti fund.

 

2.      Samband orkusveitarfélaga:

Sveitarstjóri lagði fram stofnfundargerð Sambands Orkusveitarfélaga og samþykktir þess. Oddviti lagði fram tillögu um að staðfesta aðildina að Sambandi orkusveitarfélaga og samþykktir þess.

Samþykkt samhljóða.

 

3.      Deiliskipulag Þeistareykja:

Tekin fyrir tillaga að deiliskipulagi Þeistareykja.  Haldinn var almennur kynningarfundur um deiliskipulagstillöguna á Ýdölum þann 30.11.2011

 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði kynnt almenningi samkvæmt ákvæðum skipulagslaga.

Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að auglýsa tillöguna.

 

4.      Fundargerðir Fræðslunefndar frá 28.11.11 og  05.12.11:

Lagðar fram fundargerðir Fræðslunefndar frá 28.11.11 og 05.12.11. Margrét gerði grein fyrir fundargerðunum.

Sveitarstjórn vísar 1., 3. og 4. lið fyrri fundargerðar til fjárhagsáætlunar. Fundargerðin samþykkt að öðru leyti.

Sveitarstjórn vísar 2., 3. og 4. lið síðari fundargerðar til fjárhagsáætlunar. Vegna 6. liðar samþykkir sveitarstjórn að nemendur skuli fá það bætt ef forföll kennara í tónlistarskóla verða umfram 15% og hljóði þá greinin svo: Missi nemandi úr fleiri kennslustundir vegna forfalla kennara en sem nemur 15% af áætluðu kennslumagni á önn, skal koma til endurgreiðslu á skólagjöldum í hlutfalli við fjölda tapaðra tíma umfram 15%, sé ekki kostur að bæta nemandanum upp þessa tíma.  Ef kennari verður veikur og bætir nemanda upp tapaða kennslustund (vegna fyrri ákvæða) skal hann fá það greitt aukalega.

Fundargerðin staðfest að öðru leyti.

Sveitarstjórn lýsir sérstaklega yfir ánægju sinni með góðan árangur nemenda í Stórutjarnaskóla í samræmdum prófum undanfarin 5 ár.

 

5.      Greiðsla fyrir nefndarstörf:

Tekin fyrir að nýju erindi um greiðslur til áheyrnafulltrúa á fundum Fræðslunefndar.

Samþykkt að greiða áheyrnarfulltrúum kr. 5.000 fyrir fund.

 

6.      Bréf frá Foreldrafélagi Hafralækjarskóla:

Lagt fram bréf frá Foreldrafélagi Hafralækjarskóla. Óskað er eftir fundi með fulltrúum sveitarfélagsins vegna breytinga í skólamálum sveitarfélagsins.

Oddvita falið að koma á fundi með foreldrafélaginu við fyrsta tækifæri. Oddvitar sveitarfélagsins sæki fundinn fyrir hönd sveitarstjórnar.

 

7.      Fundargerð rekstrarnefnda Hafralækjarskóla frá 01.12.11:

Lögð fram fundargerð rekstrarstjórnar Hafralækjarskóla frá 01.12.11 og tillögu hennar að fjárhagsáætlun. Ólína gerði grein fyrir fundargerðinni og fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Sveitarstjórn samþykkir fjárhagsáætlunina og staðfestir fundargerðina að öðru leyti.

 

8.      Fundargerð Félags- og menningarmálanefndar frá 22.11.11:

Lögð fram fundargerð Félags- og menningarmálanefndar frá 22.11.11.  Arnór gerði grein fyrir fundargerðinni.

2., 3. og 4. lið vísað til fjárhagsáætlunar.

Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina að öðru leyti.

 

9.      Fundargerð Skipulags- og umhverfisnefndar frá 07.12.11:

Lögð fram fundargerð Skipulags- og umhverfisnefndar frá 07.12.11. Ásvaldur gerði grein fyrir fundargerðinni.

Sveitarstjórn samþykkir 1. lið um afmörkun lóða, sem tekur til umhverfis kirkjunnar og gamalla húsa á Þverá í Laxárdal, samkvæmt tillögu nefndarinnar.

Sveitarstjórn samþykkir 2. lið, stofnun lóðar undir gönguskála í landi Hofs á Flateyjardal með þeim skilmálum sem Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til.

Nefndin leggur til í 4. lið fundargerðarinnar að fulltrúar í samvinnunefnd um svæðisskipulag á háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum verði Ásvaldur Þormóðsson og Árni Pétur Hilmarsson en til vara Þórunn Jónsdóttir og Sigurður Hlynur Snæbjörnsson.

Sveitarstjórn samþykkir tilnefningar nefndarinnar.

Fundargerðin samþykkt að öðru leyti.

 

10.  Fundargerð Héraðsnefndar frá 16.11.11. ásamt fjárhagsáætlun 2012:

Lögð fram fundargerð Héraðsnefndar frá 16.11.11 ásamt fjárhagsáætlun fyrir árið 2012. Ólína gerði grein fyrir fundargerðinni og tillögu að fjárhagsáætlun Héraðsnefndar fyrir árið 2012.

Vegna 4. liðar samþykkir sveitarstjórn tillögu um framlög sveitarfélagsins til Héraðsnefndar.

    

11.  Fundargerðir MMÞ frá 8.9., 4.10. og 8.11. 2011 og fjárhagaáætlun 2012:

Lagðar fram fundargerðir Menningarmiðstöðvar Þingeyinga frá 8/9, 4/10 og 8/11 2011 ásamt fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Ólína gerði grein fyrir fundargerðunum og fjárhagsáætluninni.

Sveitarstjórn samþykkir framkomna tillögu um framlög sveitarfélagsins til MMÞ.

 

12.  Fundargerð Brunavarnarnefndar frá 06.12.11:

Lögð fram fundargerð Brunavarnarnefndar frá 06.12.11. Arnór gerði grein fyrir fundargerðinni.

Þriðja lið vísað til fjárhagsáætlunar næsta árs.

Sveitarstjóra falið að gera smá lagfæringar á fundargerðinni í samráði við fundarritara hennar.

Fundargerðin samþykkt að öðru leyti.

 

13.  Fjárhagsáætlun Þingeyjarsveitar 2012 – fyrri umræða:

Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Þingeyjarsveitar fyrir árið 2012. Kristján fjármálastjóri mætti til fundarins undir þessum lið og kynnti tillöguna.

Samþykkt að vísa tillögunni til síðari umræðu.

Samþykkt að álagningarprósenta útsvars 2012 verði 14.48%.

 

 

Til kynningar:

 

a: Fundargerð 139. fundar HNE frá 09.11.11:

 

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:45

 

 

 

_____________________________                     ________________________________

Ólína Arnkelsdóttir                                                    Arnór Benónýsson      

 

 

_____________________________                        ________________________________         

Ásvaldur Þormóðsson                                               Ásta Svavarsdóttir

 

 

_____________________________                        _________________________________

Friðrika Sigurgeirsdóttir                                           Sigurður Hlynur Snæbjörnsson

 

 

_____________________________

Margrét Bjarnadóttir



Til baka