Félagsþjónusta

 

Hlutverk félagsþjónustunnar er m.a. að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð á grundvelli samhjálpar.

Félagsþjónusta Norðurþings hefur umsjón með félagsþjónustu Þingeyjarsveitar og málefnum fólks með fötlun. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Félagsþjónustu Norðurþings sem hægt er að nálgast hér

Félagsþjónusta Norðurþings hefur aðsetur að Ketilsbraut 22 á Húsavík. Félagsmálastjóri er Dögg Káradóttir. Hægt er að hafa samband í síma 464 6100 eða senda fyrirspurn á netfangið: doggkara@nordurthing.is

 

Hægt er að hafa samband við Dagbjörtu er varða:

 

  • Málefni aldraðra: félagslega heimaþjónustu, opið hús eldri borgara, akstur aldraðra og fleira.
  • Æskulýðs- og íþróttamál: ungmennaráð, aðstöðu til íþrótta, tómstunda, útivistar og fleira.
  • Forvarnir, áfengis- og vímuefnavarnir.

 

Einnig veitir Dagbjört upplýsingar um öll mál er varða:

 

  • Félagsþjónustu: félagslegan stuðning, húsnæðismál, barnavernd, fjárhagsaðstoð og fleira.
  • Málefni fatlaðra: heimaþjónustu, liðveislu, akstur og fleira.

Hægt er að hafa samband við Dagbjörtu á skrifstofu Þingeyjarsveitar og/eða í síma 464 3322 á símatíma skrifstofunnar. Einnig með því að senda fyrirspurn á netfangið: dagbjort@thingeyjarsveit.is