Þingeyjarsveit rekur margar stofnanir og fyrirtæki sjálfstætt og í samvinnu við nágrannasveitarfélög eins og sjá má af meðfylgjandi .
Sjá myndasíðu með ýmsum upplýsingum - smellið hér.

Íbúafjöldi 1. desember 2009: 941
Flatarmál: um 5.000 ferkílómetrar
Sveitarfélagið nær frá Vaðlaheiði í vestri austur til Hólasands og frá Flatey á Skjálfanda í norðri og suður að Grímsvötnum í Vatnajökli. Komið er inn í Þingeyjarsveit á Sprengisandsleið þegar ekið er norður yfir Fjórðungskvísl við Jökuldal við Tungnafellsjökul.
Starfsemi sveitarfélagsins:
Skrifstofa Þingeyjarsveitar; Kjarna Laugum
Grunnskólar:
Stórutjarnaskóli, Hafralækjarskóli, Litlulaugaskóli og Skólabúðirnar Kiðagili.
Leikskólar:
Leikskóladeildir eru við grunnskólana, Barnaborg við Hafralækjarskóla, Krílabær við Litlulaugaskóla og Tjarnaskjól við Stórutjarnaskóla ásamt Bárðargil í Bárðardal.
Tónlistarskólar:
Tónlistarskóli Reykdæla og tónlistardeild við Stórutjarnaskóla, tónlistardeild við Hafralækjarskóla.
Hitaveita Reykdæla og við Stórutjarnaskóla.
Slökkvilið:
Sameiginlegt slökkvilið er í Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi. Aðalstöð slökkviliðsins er í Kvíhólsmýri 1a á Laugum og þar er aðsetur slökkviliðsstjóra. Auk slökkvistöðvarinnar á Laugum eru stöðvar á Melgötu 9 við Stórutjarnaskóla og í Reykjahlíð við Mývatn.
Björgunarsveitir:
Björgunarsveitin Þingey við Melgötu 9, Björgunarsveit Reykdæla á Laugum, Björgunarsveit Aðaldæla í Iðjugerði 1.
Bókasöfn:
Í Litlulaugaskóla í Reykjadal, Stórutjarnaskóla og Ýdölum í Aðaldal, Bókafélag Laxdæla er til í Laxárdal en þar er ekki virk starfsemi. Auk þess er bókasafn í Barnaskóla Bárðdæla sem er starfrækt af Bárðdælingum.,
Íþróttaleikvangur er á Laugum
Félagsheimili í eigu sveitarfélagsins að stærstum hluta:
Breiðamýri í Reykjadal
Ljósvetningabúð í Kinn
Skógar í Fnjóskadal
Ýdalir í Aðaldal
Einnig eru samkomur í Stórutjarnaskóla.
Sveitarfélagið aðild að ýmsum rekstrareiningum og starfsemi s.s. Þeistareykjum ehf., Tjörnum ehf., Fosshóli ehf., Tröllasteini ehf. o.fl.
.
Héraðsnefnd og samstarfsverkefni:
Þingeyjarsveit á aðild að ýmsums samstarfsverkefnum í Suður-Þingeyjarsýslu, á sameiginlegum vettvangi Suður og Norður-Þingeyjarsýslum og á Eyjafjarðarsvæðinu gegnum eftirtalin sambönd:
Eyþing - samtök sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum
Héraðsnefnd Suður-Þingeyinga
- Náttúruverndarnefnd
- Menningarmiðstöð Þingeyinga
- Almannavarnarnefnd
- Samgöngunefnd
Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga
Héraðssamband Suður-Þingeyinga