S
M
Þ
M
F
F
L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
11
14
17
18
20
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
21. maí 2012
19. júní 2012
Myndavefur Þingeyjarsveitar

 

Fnjóskárbrú við Skóga.

Gamla brúin yfir Fnjóská við Skóga var endurgerð fyrir nokkrum árum og færð til upprunalegs útlits.  Handriðin voru aftur  upprétt en með stækkandi bílum höfðu þau verið gerð þannig að þau vísuðu út á við.  Nú er hún eingöngu notuð sem göngubrú.

Brúin var byggð upphaflega árið 1908 og er elsta bogabrú landsins.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Brýr yfir Skjálfandafljót hjá Fosshóli.

Brúin við Fosshól sem byggð var 1930 hefur verið endurbyggð til upprunalegs útlits og er notuð sem göngubrú.  Undir henni, aðeins til hliðar er enn eldri brú en það eru aðeins brúarstöplarnir sem sjást.  Brúin sem nú er notuð er byggð 1972 og er nú ein af 2 eða 3 brúm sem enn eru einbreiðar á hringvegi 1 og vonandi verður gerð tvíbreið brú fljótlega, þar sem einbreiðar brýr eru ævinlega slysagildrur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hraunsrétt í Aðaldal.

Hraunsrétt er í nágrenni jarðarinnar Hrauns.  Réttin var byggð upp úr 1830, hlaðin úr hraungrýti. Öll réttin er 7232 fermetrar.  Nú hefur réttin verið endurbyggð og er hún mikið menningarverðmæti auk þess sem hún er enn í notkun sem skilarétt. 

 

Fornminjar

Sjá á heimasíðu Hins þingeyska fornleifafélags: www.fornleifafélag.is

 

Þingey

Þingey í Skjálfandafljóti, þingstaður til forna.

 

Leiðarnes

Leiðarnes gengt bænum Nesi í Fnjóskadal, þingstaður.

 

Litlu-Núpar í Aðaldal

Fornminjar.