S
M
Þ
M
F
F
L
Myndavefur Þingeyjarsveitar

21. febrúar 2012

 

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar

Fundarboð

97. fundur verður haldinn

í Kjarna fimmtudaginn 23.02. 2012 kl. 13:00

Dagskrá:

 

1.      Fundarsetning:

2.      Hluthafafundur Sorpsamlags Þingeyinga:

3.      Greið leið:

4.      Sörlastaðir - Hestamannafélagið Léttir:

5.      Fundargerð Brunavarnarnefndar frá 31.01.2012:

6.      Fundargerð Fræðslunefndar frá 15.02.12:

7.      Fundargerð starfshóps um sameiningu Hafralækjar- og Litlulaugaskóla frá 20.02.12:

8.      Fundargerð Félags- og menningarmálanefndar frá 21.02.12:

9.      Drög að innkaupareglum fyrir Þingeyjarsveit:

 

 

Til kynningar:

a)      Afgreiðslur byggingarfulltrúa:

i.                     Hallbjarnarstaðir:

b)      Fundargerðir Sambands orkusveitarfélaga frá 16.12.11 og 17.02.12:

 

 

Sveitarstjóri

17. febrúar 2012

 

Þekkir þú staðinn, fólkið eða fjöllin í bakgrunni?

 

Greiningarsýning á ljósmyndum

 

Um þúsund ljósmyndir sem Þorsteinn Jósepsson tók

í Þingeyjarsýslum um miðja 20. öld.

 

Myndirnar eru í eigu Ljósmyndasafns Íslands sem hefur óskað eftir aðstoð við greiningu á myndefni.

 

Þorsteinn Jósepsson var borgfirðingur og fæddist á Signýjarstöðum í Hálsasveit. Hann varð á sínum tíma þekktur sem víðförull ferðalangur, rithöfundur og blaðamaður á Vísi, og ekki síst sem ljósmyndari. Þorsteinn lærði aldrei ljósmyndun en vann þrátt fyrir það gríðarlegt verk með því taka ljósmyndir af nær öllu landinu, hverri einustu sýslu og stórum hluta hálendisins, staðháttum og mannlífi. Þorsteinn Jósepsson þótti mjög frambærilegur ljósmyndari og myndir hans birtust í bókum á borð við Ísland í myndum og Landið þitt. Ljósmyndir Þorsteins hafa afskaplega mikið heimildargildi sé litið til hversu yfirgripsmikil og margþætt skráning hans á landi og lífsháttum var, og það er jafnframt ástæðan fyrir því safn Þorsteins er eitt það heildstæðasta og merkasta frá miðri síðustu öld.  (úr texta eftir Steinar Örn Atlason)

 

Kjörið tækifæri til að skoða skemmtilegar myndir, grufla í myndefninu og aðstoða við heimildaöflun.

 

Sýningin sem er í listasal á efstu hæð opnar

föstudaginn 17. febrúar og stendur til 29. febrúar.

Opið virka daga frá 10-16 og sunnudaginn 26. feb. 13-17.

 

25. janúar 2012

 Nú um áramótin tók Þingeyjarsveit í notkun nýtt bókhaldskerfi. Um er að ræða Navision sem sett er upp og hýst hjá Advania. Við innleiðingu  kerfisins má búast við einhverri seinkun á reglubundnum innheimtum sveitarfélagsins. Við vonum að þessar breytingar valdi íbúum sem minnstum óþægindum.

Starfsfólk skrifstofu Þingeyjarsveitar.  

20. janúar 2012

Svohljóðandi ályktun var samþykkt af sveitarstjórn Þingeyjarsveitar 19.01.12:

  

,,Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar lýsir sig reiðubúna til að auka hlutfé sitt í Vaðlaheiðargöngum til að tryggja að hafist verði handa við gerð Vaðlaheiðarganga sem allra fyrst. Það liggur fyrir að þetta samvinnuverkefni sveitarfélaga á svæðinu, íbúa þess,  fyrirtækja og ríkisins er afar mikilvægt út frá félags-, byggða- og efnahagslegum sjónarmiðum auk þess að tryggja betri samgöngur og meira umferðaröryggi.

 

Fyrir liggur að vegafé hefur verið skorið verulega niður í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi. Forsenda fyrir gerð Vaðlaheiðarganga er því að verkefnið geti staðið undir sér og trufli þannig ekki eða seinki öðrum vegaframkvæmdum á vegum ríkisins. Því lýsir sveitarstjórn Þingeyjarsveitar sig tilbúna til að auka hlutfé sitt og tryggja þannig enn betur að komi til óvæntra skakkafalla raski það ekki þeim forsendum sem út frá er gengið. Jafnframt skorar sveitarstjórn Þingeyjarsveitar á stjórnvöld að láta ekki sitt eftir liggja til að tryggja framgang verkefnisins til hagsbóta fyrir íbúa svæðisins og alla þjóðina."

  

Tryggvi Harðarson

Sveitarstjóri Þingeyjarsveitar

 

19. janúar 2012

Þingeyjarsveit auglýsir eftir rekstraraðila fyrir verslunina í Vaglaskógi. Verslunin er starfrækt yfir sumartímann.

Þeir sem hafa áhuga á að taka að sér reksturinn sendi inn umsókn fyrir 1. febrúar nk.

Frekari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 464-3322 eða 898-7460.

 

Sveitarstjórinn í Þingeyjarsveit