|
Handverkskonur milli
heiða
![]() ![]() |
![]() |
|
Goðafossmarkaður
Fosshól
Þingeyjarsveit
S: 461-3323
![]() |
Opnunartími: Sumar : Alla daga frá 9:00-19:00. S: 464-3323 Vetur : Í samfloti við Goðafossverslun. S: 464-3261 |
Félagið Handverkskonur milli heiða var stofnað þann 18. mars árið 1992. Tilgangur félagsins var og er að bæta atvinnumöguleika kvenna og auka tekjur með því að konur geti selt heimaunna framleiðslu sína heimamönnum og ferðafólki.
Í upphafi
saman stóð félagið af konum sem
búsettar voru á milli tveggja heiða sem ramma inn
starfsvæðið.
Vaðlaheiði í
vestri og Fljótsheiði í austri og var nafnið
dregið af þessari landfræðilegu
staðsetningu í Suður- Þingeyjarsýslu.
Félagið
teygði anga sína lengra þ.e.a.s. út í
Köldukinn og inn í Bárðardal. Á
þessum tíma skiptist svæðið niður
í: Hálshrepp,
Ljósavatnshrepp, Bárðardal og síðan fylgdu
með bæir í Reykjadal vestan
Fljótsheiðar.
Þingeyjarsveit
er nú heimaland Handverkskvenna milli heiða, en
Þingeyjarsveit varð til við sameiningu hinna
þriggja fyrrnefndu hreppa 2002 ásamt
Reykdælahreppi og eru
íbúar á þessu svæði u.þ.b.
sjöhundruð talsins.
Handverkskonur
milli heiða hafa frá árinu 1992
rekið litla verslun á Fosshóli við Goðafoss.
Handunnar
vörur eru þar til sölu bæði úr lopa
og öðrum efnivið. Lögð er áhersla á
framleiðslu úr íslensku hráefni og einnig
unnið
úr aðkeyptu efni.
Lopapeysan hefur
alltaf verið áberandi bæði
í hefðbundnar lopapeysur og sérprjónaðar, munstur og snið oft á
tíðum
hönnuð af
þeim sem
prjóna flíkurnar.
Einnig er
mikið úrval af handprjónuðum húfum,
vettlingum, sokkum, hyrnum og prjónuðum undirfötum
bæði á börn og fullorðna.
Muni úr
hornum og beinum er líka að finna í
versluninni, þar ber mikið á fagurlega unnum skeftum
sem prýða eldhúsáhöld,
skartgripi og tölur.
Gler og grjót er mikið notað og munir unnir úr þessum efnum, einnig finnast þar grös, te og krydd úr íslenskum jurtum tíndum á þingeyskum heimalöndum og heiðum.
Jólamarkaður er fyrir jólin, handverkskonur koma þá með vörur sem tengdar eru jólunum og fæst þá oft eitthvað matarkyns eins og sultur og heimagert konfekt.
En sjón er sögu ríkari og því tilvalið að staldra við ef leið liggur um Þingeyjarsveit.
Goðafossmarkaður er nú opinn allt árið um kring, á sumrin er opið frá morgni til kvölds en yfir vetrartímann er opið í samfloti við Goðafossverslun.









