Sveitarstjórn, fundur nr. 40
Dags. 10.12.2009
FUNDARGERÐ
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
40. fundur
í Kjarna fimmtudaginn 10.12. 2009 kl. 10:30
Dagskrá:
1. Fundarsetning
2. Fjallskil. Erindi frá Ragnari Þorsteinssyni.
3. Sorpsamlag Þingeyinga. Hlutafjáraukning.
4. Umsagnarbeiðni. Tillaga til þingsályktunar um friðlýsingu Skjálfandafljóts.
4. Fundargerð rekstrarstjórnar Hafralækjarskóla frá 4/12 ´09.
5. Fjárhagsáætlun Þingeyjarsveitar 2010.
Til kynningar:
Fundargerð Héraðsnefndar Þingeyinga frá 18/11 ´09.
Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga frá 27/11
Mætt: Ólína Arnkelsdóttir, Erlingur Teitsson, Garðar Jónsson, Hlynur Snæbjörnsson, Arnór Benónýsson, Margrét Bjarnadóttir og Ásvaldur Þormóðsson auk sveitarstjóra sem ritaði fundargerð.
1. Fundarsetning.
Oddviti setti fund.
2. Fjallskil. Erindi frá Ragnari Þorsteinssyni:
Tekið fyrir erindi Ragnars Þorsteinssonar sem hafnar því að greiða fyrir fjallskil á Þeistareykjum. Samþykkt að vísa erindinu til Atvinnumálanefndar og nefndar á vegum Héraðsnefndar um endurskoðun fjallskilareglugerðar.
3. Sorpsamlag Þingeyinga. Hlutafjáraukning:
Kynnt bréf um innköllun hlutafjár í Sorpsamlagi Þingeyinga, samtals að upphæð 18 m.kr. sbr. samþykkt hlutafjárfundar frá 9. des. 2008 og samþykkt sveitarstjórnar frá 08.01.09. Hlutur Þingeyjarsveitar í innköllun hlutaffjár er nú 3.862.912 kr. Sveitarstjóra falið að ganga frá greiðslunni.
4. Umsagnarbeiðni. Tillaga að þingsályktun um friðlýsingu Skjálfandafljóts:
Tekin fyrir beiðni um umsögn að tillögu til þingsályktunar um friðlýsingu Skjálfandafljóts og alls vatnasviðs þess ofan Mjóadalsár. (Þskj. 44) Svohljóðandi umsögn var samþykkt samhljóða í sveitarstjórn.
,,Þingeyjarsveit leggst eindregið gegn því að allt Skjálfandafljót verði friðlýst.
Nú er unnið að aðalskipulagi Þingeyjarsveitar og vonir standa til það verði staðfest fyrir mitt næsta ár. M.a. hefur verið rætt um að friða hluta Skjálfandafljóts en þar falla undir þeir staðir sem þegar eru á náttúruminjaskrá, eins og Goðafoss, Aldeyjarfoss, Hrafnabjargafoss og Þingey. Í vinnudrögum aðalskipulags er lagt til að fallið verði frá öllum virkjunaráformum í Skjálfandafljóti, þar á meðal Hrafnabjargavirkjunar. Hins vegar vill sveitarfélagið áskilja sér rétt til að nýta vatn úr Skjálfandafljóti til vistvænnar starfsemi, eins og t.d. kælivatnstöku fyrir tölvugagnaver þar sem vatninu yrði skilað aftur í fljótið.
Sveitarstjórn leggst í sjálfu sér ekki gegn því að vatnasvið Skjálfandafljóts verði friðlýst ofan Mjóadalsár. Sveitarstjórn telur eðlilegt að afstaða til slíkrar friðunar verði tekin í aðalskipulagi sveitarfélagsins áður en ríkisvaldið tekur fram fyrir hendurnar á sveitarfélaginu í skipulagsmálum. Sveitarstjórn og skipulagsnefnd hafa í vinnu sinni við aðalskipulagsgerðina lagt sig fram um að gæta að umhverfisþætti skipulagsmála í hvívetna.“
5. Fundargerð rekstrarstjórnar Hafralækjarskóla frá 04.12.09:
Ólína fór yfir fundargerðina og fjárhagsáætlun Hafralækjarskóla fyrir næsta ár. Fundargerðin samþykkt og fjárhagsáætluninni vísað til síðari umræðu.
6. Fjárhagsáætlun Þingeyjarsveitar:
Farið yfir fjárhagsáætlun og gjaldsskrár fyrir næsta ár. Samþykkt að vísa fjárhagsáætluninni og gjaldskrám til síðari umræðu.
Auk þess var lögð fram svohljóðandi tillaga að bókun.
,,Í ljósi þess að nokkuð hefur borið á því að stofnanir sveitarfélagsins fari fram úr fjárheimildum ákveður sveitarstjórn að settir verði upp nýir verkferlar til að auka ábyrgð stjórnenda og auðvelda þeim að fylgjast með fjárútlátum stofnanna sinna. Sveitarstjórn samþykkir að fela oddvita, sveitarstjóra og skrifstofustjóra sveitarfélagsins að setja upp þessa verkferla, kynna þá stjórnendum viðkomandi stofnanna, leggja þá síðan fyrir sveitarstjórn til samþykktar. Skal þessu verki lokið samhliða fjárhagsáætlun.“
Samþykkt samhljóða.
Til kynningar:
a) Fundargerð Héraðsnefndar Þingeyinga frá 18.11.09:
b) Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 27.11.09:
Fleira ekki gert
og fundi slitið kl. 15:40
Ólína Arnkelsdóttir Erlingur Teitsson
Arnór Benónýsson Margrét Bjarnadóttir
Garðar Jónsson Ásvaldur Þormóðsson
Hlynur Snæbjörnsson
Til baka