Atvinnumálanefnd, fundur nr. 13
Dags. 1.2.2012
13. fundur atvinnumálanefndar 1. febrúar 2012.
Mættir: Friðrika Sigurgeirsdóttir, Ásta Hrönn Hersteinsdóttir, Vagn Sigtryggsson, Garðar Jónsson í forföllum Eiðs Jónssonar og Ásta Svavarsdóttir sem ritar fundargerð.
1. Friðrika setur fund 20:10 og býður fundarmenn velkomna.
2. Skoðun skýrslu á beitarástandi á Þegjandadal, S-Þing.
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 3. nóv. 2011 að leita eftir áliti sérfræðinga varðandi beitarþol og beitarstýringu á svæðinu. Landgræðsla Ríkisins og Búgarður-Ráðgjafarþjónusta skiluðu skýrslu dagsettri 21.nóv 2011. Sú skýrsla lesin yfir.
3. Samþykkt um búfjárhald í Þingeyjarsveit.
Sveitarstjórn samþykkti á fundi 3. Nóv. 2011 að fela Atvinnumálanefnd að vinna tillögu að samþykkt um búfjárhald í Þingeyjarsveit fyrir næsta vor. Vinna hafin við upplýsingaöflun og byrjað á drögum samþykktarinnar.
Fleira ekki rætt og fundi slitið 22:20.
Ásta Svavarsdóttir
Friðrika Sigurgeirsdóttir
Ásta Hrönn Hersteinsdóttir
Vagn Sigtryggsson
Garðar Jónsson
Til baka