S
M
Þ
M
F
F
L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
11
14
17
18
20
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
21. maí 2012
19. júní 2012
Myndavefur Þingeyjarsveitar

7  9. mars 2012  8

föstudaginn 9. mars 2012

Mývatn Open - Hestamót

Mývatn - Selið
Hið feyki vinsæla hestamót Mývatn Open - Hestar á ís, verður haldið helgina 9. og 10. mars. Hestamannafélgið Þjálfi býður í reiðtúr út á frosið Mývatn á föstudeginum og er öllum hjartanlega velkomið að taka þátt í því að kostnaðarlausu. Sel-Hótel Mývatn býður knöpum upp á samlokur og heitt kakó út í eyju. Síðan hefst mótshaldið á laugardeginum sem endar með hestamannahófi á Sel - Hótel Mývatni um kvöldið. Sjá nánar: Hlaupastelpan 9.tbl. 1. mars 2012

föstudaginn 9. mars 2012 frá kl. 20:00 til 00:00

Bingó

Kiðagil
Föstudagskvöldið 9. mars verður Bingó í Kiðagili og hefst það kl.20:00. Glæsilegir vinningar. Vöfflur með rjóma og kaffi verður til sölu. Um þessar mundir er verið að safna fyrir hjartastuðtæki. Hlökkum til að sjá ykkur. Fjáröflunarnefnd kvenfélagsins Hildar Ath erum ekki með posa til afnota Sjá: Hlaupastelpan 9.tbl. 1. mars 2012

föstudaginn 9. mars 2012 frá kl. 20:30 til 22:30

Dansæfingar

Ljósvetningabúð
Dansáhugafólk athugið. Það verða tvær dansæfingar í mars, 9 og 23. í Ljósvetningabúð og byrjum við kl.20.30 og dönsum til 22.30. Ýmsir dansar sem ekki eru almennt dansaðir verða rifjaðir upp og hvetjum við alla sem hafa áhuga á að koma. Kvöldið kostar 500.kr. Þetta er ódýr og skemmtileg heilsurækt. Harmonikufélag Þingeyinga.