S
M
Þ
M
F
F
L
Myndavefur Þingeyjarsveitar

7  6. janúar 2012  8

föstudaginn 6. janúar 2012 frá kl. 20:30 til 00:00

Þrettándagleði

Ljósvetningabúð
U.m.f. Gaman og alvara stendur fyrir þrettándagleði föstudagskvöldið 6. janúar kl. 20.30 í Ljósvetningabúð, (með fyrirvara um veður og færð) og hefst hún að vanda með glæsilegri flugeldasýningu Björgunarsveitarinnar Þingeyjar. Eins og venjulega kemur hver með brauð/köku og leggur á sameiginlegt hlaðborð. Í boði verður kaffi, te og djús. Spilað verður Bingó, spjaldið kostar 500 kr. Veitt er viðurkenning fyrir snyrtilegasta lögbýlið. Krakkar munið smákökusamkeppnina : ) Þetta hafa alltaf verið góðar samkomur og auðvitað eru allir íbúar Þingeyjarsveitar velkomnir. Umf. Gaman og alvara. Sjá: Hlaupastelan, 1.tbl., 19.árg. - 2012